Haukur Arnars Bogason fæddist á Akureyri 21. nóvember 1919. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 11. febrúar 2012.

Útför Hauks var gerð frá Áskirkju í Reykjavík 17. febrúar 2012.

Elsku afi.

Takk fyrir allar góðu minningarnar sem þú gafst mér, þín verður sárt saknað.

Þakka þér kærleikann, hjartalag hlýtt,

af gæsku þú gafst yl og hlýju.

í heimi guðsenglanna hafðu það blítt,

uns hittumst við aftur að nýju.

(Höf. ók.)

Ég kveiki á kerti fyrir þig, góða nótt.

Þín

Linda.