[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Á fermingardaginn vilja stúlkurnar líta sem allra best út og þá er gaman að geta gripið til farða sem ekki er of áberandi.

Farðinn frá Youngblood er léttur og gerir húðinni kleift að anda.

„Youngblood-farðinn getur kallað fram létta förðun sem ætluð er fermingarstúlkum,“ segir María Valdimarsdóttir hjá Ilma. „Ung húð ætti að leyfa æskuljómanum að njóta sín og markmiðið í raun að draga fram það besta í útliti hvers og eins, fríska aðeins upp á húðlitinn og skerpa augnsvipinn.

Einn af kostum farðans er sá að hann helst lengi fallegur á húðinni og það þarf í raun ekki að laga hann til yfir daginn,“ bendir María á. „Það er mikill kostur þar sem þetta er oft langur og annasamur dagur.“ Youngblood Starter Kit inniheldur allt sem þarf fyrir förðunina, eina sem þarf er að bæta við litalínu eins og gloss, maskara og ef til vill augnskugga, allt eftir því hvað mikla förðun er um að ræða.

Natural Mineral-farðinn frá Youngblood getur hentað vel fyrir þær sem eru með einhver óhreinindi til að fela, þar sem hægt er að nota hann sem „concealer“ til að hylja roða og óhreinindi og bursta svo létt yfir andlitið. Þannig næst að hylja það sem þarf að hylja án þess að förðunin verði of þung.

High Defenition High Defenition er frábært laust púður yfir allan farða sem fullkomnar förðunina. Farðinn helst frísklegur lengur, sléttir yfirborð húðarinnar og kemur sérstaklega vel út fyrir myndatökuna.

Hrein húð er grundvallaratriði

Kristín Guðmundsdóttir hjá Snyrtistofunni Krismu í Grafarvogi segir mikilvægt fyrir ungar stelpur sem eru að byrja að farða sig að temja sér strax að þrífa húðina vel. „Hrein húð er undirstaða fallegrar förðunar þó svo að farðinn geti gert kraftaverk,“ segir Kristín. „Einnig er mikilvægt að nota gott rakakrem undir farðann.“ Kristín segir aðalkostinn við Youngblood Natural Mineral Foundation að farðinn sé það léttur að vel lofti gegnum hann að húðinni og hann stífli ekki. Þannig megi ná fram náttúrulega fallegri förðun og hylja misfellur og roða án þess að virðast áberandi farðaður. „Ekki spillir heldur að Youngblood-förðunarlínan er unnin úr náttúrulegum steinefnum. Farðinn er 100% náttúrulegur, olíulaus og án allra kemískra efna. Vörurnar eru einstakar fyrir náttúrulegan eiginleika sinn að geta andað í gegnum húðina og henta fyrir allar húðtegundir. Merkið býður upp á breiða litalínu bæði fyrir andlit, augu og varir.“ jonagnar@mbl.is

Fyrirsæta: Þóra Helgadóttir

Svona notar þú Youngblood:

1. Settu örfáar agnir af farðanum í lokið, rúllaðu innan úr því með burstanum og dustaðu af með því að slá létt með burstanum á lokið.

2. Burstaðu andlitið með hringlaga hreyfingum. Byrjaðu við kjálka og færðu burstann upp á við.

3. Því betur sem burstanum er rúllað um andlitið því þéttari verður áferðin. Þegar húðin hitnar samlagast farðinn henni fullkomlega.

4. Auðvelt er að stjórna hversu mikið farðinn á að hylja með því að auka magnið af farðanum.