Við höfum orðið vör við þá þróun að fólk hefur áhuga á að gera veitingar sjálft fyrir veislurnar og þá er gott að geta nálgast mikið af girnilegum og góðum uppskriftum á einum stað,“ segir Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri Mjólkursamsölunnar. Á uppskriftavef MS má finna uppskriftir fyrir veislur af flestum tilefnum – meðal annars fermingarveislur. Af einstökum réttum þar má meðal annars nefna snittur, spennandi smárétti, tartalettur, innbakaða osta, ostabakka og gómsætar tertur sem hæfa vel í fermingarveislur
Vefsetrið Gott í matinn er vel sótt. Þar er að finna alls átján uppskriftaflokka, til dæmis uppskriftir að pitsum og osta- og skyrtertum; kaldar og heitar sósur, bakstur, fisk- og kjötrétti og svona mætti áfram telja. Á vefnum eru einnig hugmyndir að ostabökkum. Í flokknum fermingar- og veisluuppskriftir eru 50 uppskriftir og von á fleiri á næstunni.
Uppskriftir á tveggja vikna fresti
Í tengslum við vefinn er starfræktur uppskriftaklúbbur MS en fólk innan vébanda hans fær sendar uppskriftir á tveggja vikna fresti. „Nú fyrir fermingarnar höfum við tekið saman fjölda af uppskriftum sem henta fyrir fermingarveislur og nú þegar vorið nálgast eru ostabakkarnir líka mjög vinsælir, til dæmis bakkar með Óðalsostum og mygluostum ásamt grænmeti og sultum. Fremur auðvelt er að gera slíka bakka og þeir höfða til flestra,“ segir Guðný sem leggur áherslu á að á uppskriftavefnum góða megi finna uppskriftir sem hæfa jafnt byrjendum í matargerð sem og lengra komnum. Allir eigi að finna eitthvað við sitt hæfi.
Rúllur með reyktum laxi, rjómaosti og piparrót
um 20 stk.
20 sneiðar reyktur lax
reyklaxamauk:
125 g rjómaostur
125 g rjómaostur með kryddblöndu
1 tsk. rifin piparrót
250 g reyktur lax
2 msk. saxaður ferskur graslaukur
salt og nýmalaður svartur pipar
½ msk. sítrónusafi
2 msk. sýrður rjómi
Aðferð Blandið saman rjómaostunum, kryddið með piparrót, sítrónusafa, salti og nýmuldum svörtum pipar. Saxið graslaukinn og bætið saman við. Saxið laxinn 250g og bætið saman við og hrærið vel. Leggið sneiðarnar á bakka og setjið rjómaostalaxamaukið á sneiðina og rúllið upp. Skreytið með smá doppu af sýrðum rjóma á toppinn og skreytið með graslauk.
Tortillur með pepperoni-osti og spínati
5 stk. stórar tortillukökur
125 g rjómaostur
150 g pepperoni-ostur rifinn
25 sneiðar pepperoni-sneiðar eða saxað
200 g spínat
100 g rauðlaukur saxaður
Aðferð Hitið tortillurnar á pönnu svo það sé auðveldara að vinna með þær. Raðið á bretti eða borð. Smyrjið með rjómaosti, og stráið pepperoni-ostinum yfir. Leggið pepperoni-sneiðarnar á og bætið við spínati og söxuðum rauðlauk. Rúllið upp og kælið. Skerið í sneiðar og setjið sýrðan rjóma á toppinn.
Espressosúkkulaðiterta
125 g smjör
100 g flórsykur
250 g hveiti
2 eggjarauður
2 msk. kalt vatn
Aðferð: Blandið saman smjöri, flórsykri og hveiti. Bætið þar næst í eggjarauðum og vatni. Hrærið vel saman. Þrýstið deiginu í springform ca. 28 cm og setjið vel upp á kantinn. Kælið í ca. 1 tíma. Setjið smjörpappírsörk í botninn og hrísgrjón yfir hann og bakið botninn við 180°C í 20 mínútur. Fjarlægið smjörpappírinn og hrísgrjónin og bakið í 5 mínútur í viðbót.
6 blöð matarlím
4 dl rjómi
1 dl nýmjólk
600 gr suðusúkkulaði
100 g smjör
1,5 dl sterkt espressokaffi
Aðferð Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Sjóðið saman mjólk og rjóma og takið af hellunni. Bætið í söxuðu súkkulaðinu, hrærið vel saman, bætið þar næst í smjörinu og hrærið vel saman. Kreistið vatnið vel af matarlíminu og leysið það upp í espressokaffinu. Blandið saman við súkkulaðifyllinguna og að lokum hellið fyllingunni í tertubotninn og kælið vel. Berið fram með þeyttum rjóma eða góðum ís.