Myndasmiður Krakkar eiga að fá að njóta sín til fulls á myndunum, enda er ferming stór áfangi, segir Krissý.
Myndasmiður Krakkar eiga að fá að njóta sín til fulls á myndunum, enda er ferming stór áfangi, segir Krissý. — Morgunblaðið/Ómar
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Tímarnir breytast og mennirnir með, er inntak orða Kristínar Þorgeirsdóttur. Hún er best þekkt sem Krissý og hefur starfað sem ljósmyndari í bráðum tuttugu ár. Fermingarmyndatökur eru stór hluti af starfi hennar því allir vilja myndir frá myndir frá merkisdeginum.

Krakkar í dag eru allt öðruvísi en þegar ég byrjaði í ljósmyndun árið 1993. Þau eru opin og frjálsleg í myndatökum; einfaldlega miklu ánægðari með sig en áður,“ segir ljósmyndarinn Krissý. „Krakkar í dag eru einnig dugleg að taka myndir sjálf og mynda hvert annað. Eru fyrir vikið ekki jafn stressuð að koma í myndatöku og var oft raunin hér áður. Þau eru upplitsdjörf, kát og glöð og slíkt smitar alltaf út frá sér,“ segir Krissý.

Ekki er einasta að krakkar séu upplitsdjarfari en áður; starf ljósmyndarans hefur einnig breyst og er að sumu leyti orðið auðveldara. Stafræn tækni ljósmyndunar hefur breytt miklu. Áður komu foreldrar með börnin á fermingardeginum sjálfum þegar spennan var í hámarki og kannski erfitt fyrir krakkana að slaka á og vera þau sjálf.

Fanga persónuleikann

Auðvitað tíðkast enn í dag að myndirnar séu teknar á fermingardaginn. Hitt er þó miklu algengara að myndirnar séu teknar tveimur til þremur vikum áður, segir Krissý. „Algengt er að stelpurnar komi í myndatökuna sama dag og prufugreiðslan er tekin og taki þá jafnvel með sér eitthvað sem tengist áhugamálinu. Það getur verið hvað sem er; svo sem skíði, fimleikaföt, hljóðnemi og svo framvegis. Úrval mynda verður fyrir vikið margfalt meira og verkefni ljósmyndarans er að fanga persónuleika hvers og eins og gleðiglampanum í augunum,“ segir Krissý og heldur áfram

„Krakkarnir eiga að fá að njóta sín til fulls á myndunum, enda er fermingin stór áfangi og þau stödd á þeim tímapunkti þegar lífið allt er að breytast. Æskuárin senn að baki og fullorðinsárin framundan.“

Fermingartískan er alltaf ný

Tískan breytist frá einu misseri til annars og þess sér eðlilega stað á myndum. Fermingartískan er alltaf ný. Krissý, í samvinnu við Elsu Nielsen, býður meðal annars upp á flotta bakgrunna fyrir fermingarmyndirnar. Myndin sjálf er tekin í hlutlausu umhverfi myndvers en svo er fermingarbarnið fært, ef svo má segja, inn í nýtt umhverfi. Í þessu sambandi bjóðast margir mismunandi bakgrunnar sem hægt er að velja úr.

„Við seljum hins vegar og aðeins takmarkað magn af hverjum bakgrunni þar sem við höfum alls ekki hugsað okkur þetta sem fjöldaframleiðslu. Þessar myndir eru seldar sér og fylgja ekki með í myndatökunni; þær eru sjálfstætt listaverk. Nú er í fyrsta sinn boðið upp á fjóra mismunandi bakgrunna. Í hverri möppu er alls 21 mynd og einnig er hægt að fá þær á diski í þeirri upplausn sem óskað er.“

Mynda kannski í kirkjunni

Fermingarmyndirnar eru oftast teknar á stofu, enda tæpast hægt að treysta á veður í íslenskum aðstæðum, segir Krissý. Í dag er einnig vinsælt að taka myndirnar úti – slíkt fer einfaldlega eftir óskum fólks og segist Krissý jafnan og glöð mæta þeim.

„Til dæmis kom ungur strákur um daginn með skíðabrettið sitt með sér og þá tókum við myndirnar bara úti sem kom ofsalega vel út. Hins vegar hefur aldrei komið til þess að fermingarmyndirnar séu teknar í kirkjunni sjálfri. En hugmyndin er skemmtileg, myndir teknar þar gætu vafalaust orðið virkilega skemmtilegar þar sem umhverfið þar er skemmtilegur og tignarlegur bakgrunnur.“

sbs@mbl.is