Katrín Ómarsdóttir
Katrín Ómarsdóttir
Katrín Ómarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, gekk í gær til liðs við sænska úrvalsdeildarfélagið Kristianstad, sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar.

Katrín Ómarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, gekk í gær til liðs við sænska úrvalsdeildarfélagið Kristianstad, sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar. Hún kemur aftur á fornar slóðir því Katrín lék áður með liðinu hálft tímabilið 2010 og þar leika einnig Sif Atladóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir. Katrín var búin að semja við Philadelphia í Bandaríkjunum áður en keppni í atvinnudeildinni þar var frestað um eitt ár. vs@mbl.is