Óður til þagnarinnar. N-AV.
Norður | |
♠KDG83 | |
♥Á5 | |
♦102 | |
♣G1075 |
Vestur | Austur |
♠2 | ♠Á1097654 |
♥D43 | ♥72 |
♦9763 | ♦D |
♣D8632 | ♣ÁK9 |
Suður | |
♠-- | |
♥KG10986 | |
♦ÁKG854 | |
♣4 |
Sagnir þróast oft furðulega. Austur á mikil sóknarspil, en eins og málin æxlast er honum hollast að passa til eilífðarnóns.
Í N-S voru nýkrýndir Íslandsmeistarar í tvímenningi, Páll Þórsson og Stefán Stefánsson. Páll kom austri á óvart með því að opna á 1♠. Austur tók létt bakföll, en náði sér fljótt á strik og lagði pass-miðann mjúklega á borðið. Stefán krafði í geim með 2♥ og Páll sagði 2G. Aftur hlaut austur að passa, enda varla vit í því að melda á þessu stigi. Stefán stökk í 6♦ og Páll breytti í 6♥. Hvað nú?
Enn er best að þegja, en í reynd brast þolinmæði austurs og hann leyfði sér að dobla. Það var misráðið, því doblið er af meiði Lightners og biður um útspil í lit blinds . Spaði kom út og Stefán gaf aðeins á ♥D: 1210 og tær toppur.