Falleg Enza Marey Massaro lítur glæsilega út að lokinni fermingarförðun frá Make-Up Store.
Falleg Enza Marey Massaro lítur glæsilega út að lokinni fermingarförðun frá Make-Up Store.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Margrét Ragna Jónasardóttir hjá Make-Up Store gefur hér góð ráð fyrir fermingarförðunina og útskýrir, skref fyrir skref, hvernig best er að bera sig að.
Undirbúningur: Mikilvægt er að vera með hreina húð þegar það er byrjað á förðun. Hreinsið húðina með viðeigandi hreinsi og berið síðan á andlitsvatn til að jafna ph-gildi húðar. Berið síðan á rakagefandi krem. Athugið að nota krem sem er ekki of feitt ef húðin er blönduð/feit. IceCreamTime er upplagt fyrir unga húð þar sem það er létt og nærandi og gott undir farða.

Grunnur:

Áður en farði er borinn á er einnig gott að bera á svokallað grunnkrem til að gefa farðanum betri endingu. Grunnkrem er sérstaklega gott fyrir unglingshúð sem er ef til vill blönduð/feit og fyrir unglinga sem eru með útbrot þar sem grunnurinn jafnar yfirborðið fyrir farðann og gefur húðinni að auki ljóma. BasePreper grunnur í kremformi sem gerir húðina frísklegri. Eftir að kremið hefur verið borið á er gott að leyfa kreminu að jafna sig á húðinni í um mínútu. Síðan er farðinn borinn á.

Farði:

Fyrir unga húð er einstaklega gott að veljaWonderPowder sem farða. Púðrið er náttúrulegt og án rotvarnar- og bindiefna. Farðinn stíflar ekki svitaholur og verndar húðina. Það er auðvelt að stjórna áferðinni og útkoman er óaðfinnanleg. Fyrir þær sem vilja ekki nota farða er upplagt að nota eingöngu WonderPowder fyrir náttúrulegt útlit. Einnig er auðvelt að blanda púðrinu út í rakakrem til að útbúa litað dagkrem fyrir þurra erta húð. Svo er púðrinu dustað yfir með stórum púðurbursta. Steinefnapúðrið hentar viðkvæmustu húðgerð.

Hyljari:

Gott er að hafa í huga að nota farða til að jafna húðlit í stað þess að hylja bauga, bólur og roða. Notið heldur þynnri farða fyrir fermingarstúlkur og þéttan hyljara á roða og bólur og undir augu ef þess þarf. Byrjið á að bera farða á húðina og athugið síðan hvort það þurfi hyljara yfir ákveðin svæði eins og á bauga eða bólur. CoverAll Mixer frábærhyljari, því hann inniheldur 3 liti með þéttum litögnum og hylur alla mislitaða tóna húðarinnar. Gulur hylur roða, ferskjulitaður hylur bláma og ljósi húðlitaði tónninn er notaður til að blanda við hvorn tóninn fyrir sig. Best er að bera hyljara á með bursta með nylonhárum og þá sérstaklega á bólur til að koma í veg fyrir að það þurfi að nota fingurna.

Augabrúnir:

Augnabrúnirnar eru formaðar meðTaupe augnblýanti en hann er mjög mildur og fallegur fyrir flesta húðtóna því hann er „neutral“,ekki gulur né rauðtóna. Liturinn er afar hentugur til að forma og fylla inn í augabrúnirnar í stað þess að dekkja. Hann hentar einnig í það að ramma inn augun á náttúrulegan og mildan hátt.

Augu:

Það er best að varast það að nota of dökka liti á fermingardaginn. Reynið frekar að velja milda liti til að fá náttúrulegra yfirbragð og poppa þá förðunina upp með t.d. einum björtum lit. Pastellitir eru afar vinsælir nú í vor. Auðveld leið er að bera einn lit af augnskugga eða kremskugga yfir allt augnlokið og yfir það augnskuggaduft. Augnskuggaduftin eru afar vinsæl hjá ungu kynslóðinni og fáanleg í fjölmörgum litum. Að lokum er augnblýantur borinn á undir augað. Skemmtilegt er að velja einhvern bjartan blýant. Mýkja út línuna með litlum bursta og jafnvel að bera örlítin augnskugga yfir augnblýantinn í sama lit.

Maskari:

Fyrir þær sem eru ekki farnar að nota maskara er oft nóg að bretta upp á augnhárin og setja t.d. örlitið vaselín á endana á augnhárunum til að gera þau glansandi. Annars er líka gott ráð að velja svarbrúnan maskara í stað þess að nota blá-svartan og greiða vel yfir augnhárin eftir að maskarinn er borinn á til að koma í veg fyrir klessur og til að fá náttúrulegt útlit.

Þegar maskari er borinn á er gott að juða burstanum fram og til baka, það gefur augnahárunum meiri þykkt. Síðan er maskara greitt vel inn á milli rótarinnar á augnhárunum og greitt út eftir augnhárunum til að lengja.

Kinnar:

Nú í vor er afar vinsælt að vera með bjarta og jafnvel skæra kinnaliti í bleikum og kóraltón fremst á kinnunum. Veljið lit sem fellur vel við húðlit, þannig næst fram frísklegt útlit. Einnig er hægt að nota HighTech Lighter kremlit. Það er fjölnota vara sem meðal annars er hægt er að nota sem augnskugga, kinnalit, varalit og sem „highlight“ á kinnbein. Andlitið er skyggt með Sun Touch sólarpúðri undir kinnbein, við gagnauga, undir höku og niður á háls. Síðan er kinnalitur settur fremst í kinnarnar.

Varir:

Á varir er ýmist valið varagloss eða gegnsær varalitur. Nú í vor eru mildir kórallitir afar vinsælir og jafnvel gloss með fíngerðu glimmeri settir yfir.

Neglur:

Það getur verið skemmtileg leið til að tjá sinn stíl á fermingardaginn að setja einhvern skemmtilegan lit á neglurnar. Það eru allir regnbogans litir í tísku í naglalökkum þannig auðvelt er að finna lit. Ef til vill er hægt að velja einhvern lit sem passar við förðunina eða blómin í fermingunni sjálfri.

jonagnar@mbl.is

Vörur sem voru notaðar á módel

Húð: WonderPowder (Kalahari), hyljari: CoverAll-Mix hyljari.

Augu: HighTechLighter (Venus), Augnskuggaduft: Lady

Augnblýantur: GoWild,

Maskari: MultiLash,

Kinnalitur: MustHave

Varir: Lipgloss:Tulip

Fermingarmódel: Enza MareyMassaro, 13 ára

Förðun: Margrét R. Jónasar með MAKEUPSTORE