Hátíð franskrar tungu er haldin árlega um allan heim en þá er fagnað fjölbreytileika franska málsins og menningu frönskumælandi þjóða.
Í tilefni af þessum alþjóðlega viðburði mun franska sendiráðið sýna einstakt samansafn af vinsælustu sjónvarpsauglýsingum síðustu áratuga, frá hinum frönskumælandi heimi. Þar sem ýmis lönd hafa tengsl við frönskuna eru auglýsingarnar á ólíkum tungumálum s.s. frönsku, rómönsku og víetnömsku. Saman mynda þær tveggja klukkustunda kvikmynd sem verður sýnd allan daginn á KEX Hostel, í dag, föstudag 23. mars, frá klukkan 11-23.