Atvinnupóker Nokkrir tugir pókerspilara hafa atvinnu af því að leika póker á netinu. Dæmi eru um að maður hafi unnið sér inn tæpar níu milljónir með netspilun hér á landi. Enginn skattur er greiddur af vinningsfénu.
Atvinnupóker Nokkrir tugir pókerspilara hafa atvinnu af því að leika póker á netinu. Dæmi eru um að maður hafi unnið sér inn tæpar níu milljónir með netspilun hér á landi. Enginn skattur er greiddur af vinningsfénu. — Morgunblaðið/Jim Smart
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Spilun á póker í gegnum netið nýtur vaxandi vinsælda hér á landi sem og annars staðar í heiminum. Nú er svo komið að tugir íslenskra netpókerspilara hafa þessa iðju eina að atvinnu.

Baksvið

Viðar Guðjónsson

vidar@mbl.is

Spilun á póker í gegnum netið nýtur vaxandi vinsælda hér á landi sem og annars staðar í heiminum. Nú er svo komið að tugir íslenskra netpókerspilara hafa þessa iðju eina að atvinnu. Netspilarar skrá sig á pókernetsíður þar sem þeir fá eigið aðgangsnafn. Á hverjum klukkutíma er fjöldi keppnismóta í gangi og geta notendur jafnvel verið þátttakendur í mörgum þeirra í einu. Keppendur geta valið á milli þess að greiða sérstakt þátttökugjald eða spila frítt. Gjarnan eru lágar upphæðir í boði fyrir að standa uppi sem sigurvegari á fríu mótunum. Vinningsféð hækkar svo eftir því sem þátttökugjaldið er hærra. Pókerspilarar notast við kreditkort til þess að kaupa sér inneign á síðunum.

Hægt að fylgjast með öðrum

Davíð Þór Rúnarsson, eigandi veitingastaðanna Gullaldarinnar, Pókerklúbbsins 53 og Casa, er einn helsti pókersérfræðingur landsins. Hann segir þá sem spila á netinu vera sérstaka tegund pókerspilara. „Þeir búa í öðrum heimi en aðrir. Ef þú spilar á netinu og ætlar að græða eitthvað á því þarftu að sitja við í 10-12 tíma í beit,“ segir Davíð Þór.

Hann segir netspilun krefjast mikillar athygli. Þeir sem séu virkir spili með hjálp sérstakra pókerforrita á allt að 36 borðum í einu.

Í netspilun sitja leikmenn fyrir framan tölvuskjá. Ýmsar leiðir eru notaðar til þess að fá upplýsingar um aðra spilara. Hægt er að fara inn á sérstakar netsíður sem skrá tölfræði pókerspilara. Þar má fletta upp notendanafni andstæðinganna og fá tölfræðilegar upplýsingar um það hvernig þeir eru líklegir til að bregðast við í hinum ýmsu aðstæðum.

Rassinn áfram í buxunum

Dæmi er um mann hér á landi sem unnið hefur 70 þúsund dollara á árinu 2012 en það jafngildir nærri 8,9 milljónum í íslenskum krónum. Til þess að nota vinningsféð stofna leikmenn kreditkort erlendis eða setja sig í samband við einstaklinga sem eru tilbúnir að kaupa evrur eða dollara fyrir krónur. Um 5% netspilara koma út í hagnaði. Margir vilja halda spilun sinni leyndri opinberlega til þess að forðast skattgreiðslur. „Að sjálfsögðu fara sumir illa út úr þessu, en netsíðurnar torvelda pókerspilurum að spila rassinn algjörlega úr buxunum,“ segir Davíð að lokum.

Lítið mál að stöðva greiðslur

• Ágóði af fjárhættuspilum á erlendum vefjum skattskyldur

Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, sem sér um greiðslumiðlun fyrir öll íslensk greiðslukort, segir að í sjálfu sér sé einfalt mál að loka fyrir greiðslur til erlendra spilavefja. Viðurkenndir spilavefir hafi tiltekið starfsnúmer og hægt sé að búa svo um hnútana að ekki sé hægt að nota íslensk greiðslukort í viðskiptum við þá. „Tæknilega séð er þetta tiltölulega lítið mál,“ segir Haukur. Bann við að spila fjárhættuspil á erlendum vefsíðum sé í gildi bæði í Bandaríkjunum og Noregi og þar sé þessi háttur hafður á. Til skamms tíma gátu Íslendingar heldur ekki keypt vörur á tónlistarvefnum Itunes og þá var sambærilegum aðgerðum beitt.

En þótt það sé tæknilega auðvelt að koma slíkum hindrunum á er ekki þar með sagt að þær dugi til að koma í veg fyrir spilamennskuna. Haukur bendir á að það sé ákaflega einfalt mál að komast framhjá þessari hindrun. Á vefnum sé fjöldinn allur af óvönduðum spilavefjum sem hvorki séu vottaðir né sæti þeir eftirlit. Þeir sem vilji spila á þeim, framhjá greiðslubanni eins og lýst er hér að ofan, geti t.a.m. látið líta svo út að þeir séu að kaupa vörur eða áskrift að tímaritum, þegar þeir eru í raun að kaupa inneign á spilavefjum. Slíkt sé ekki hægt á viðurkenndum spilavefjum. Spilafíklar séu í enn meiri hættu á þessum óvönduðu vefjum, m.a. vegna þess að engin trygging sé fyrir því að spilarar fái hugsanlega vinninga greidda eða að farið sé eftir leikreglunum, fyrir utan að á þeim sé hætta á að beitt sé óvandaðri meðulum til að leiða spilara lengra inn á ógæfubrautina. Haukur segist skilja vel hugsunina að baki því að leggja til bann við viðskiptum við erlenda spilavefi. „En því miður mun þetta ekki virka,“ segir hann. „Ástandið verður bara verra.“

Greiði skatt eins og af öðrum tekjum

Vinningar í þartilbærum happdrættum, lottói o.þ.h. sem rekin eru í góðgerðaskyni eru undanþegnir skattskyldu en aðrir vinningar og ágóði sem menn kunna að hafa af öðrum fjárhættuspilum, s.s. á erlendum vefsíðum, eru skattskyldir líkt og allar aðrar tekjur, að sögn Skúla Eggerts Þórðarsonar, ríkisskattstjóra. „Það er auðvitað ekki ætlast til þess að menn geri grein fyrir einhverjum smápeningum, einhverjum þúsundköllum, en almenna reglan er sú að þetta er skattskylt og það eru engar undanþágur frá því,“ segir hann. Líti menn á spilamennskuna sem atvinnurekstur eiga sjónarmið um yfirfæranlegt tap við, að sögn Skúla. Geri þeir það þurfi þeir jafnframt að uppfylla önnur skilyrði s.s. reikna sér laun og greiða tryggingargjald af þeim launaþætti. runarp@mbl.is

ATVINNUPÓKERSPILARI SPILAR UM 30 TÍMA Á VIKU

Græddi 12 milljónir á tveimur árum

Netpókerspilari sem Morgunblaðið náði tali af hefur grætt um 12 milljónir á þeim tveimur árum sem hann hefur haft netpóker að atvinnu. Hann er 24 ára gamall og býr hjá foreldrum sínum.

,,Ef ég skipti þessu í mánaðartímabil þá græði ég í 90% tilfella. Ef ég spila nægilega mikið og er duglegur get ég grætt svona milljón á mánuði. Ég er hins vegar oft mjög latur og læt mér nægja 100-300 þúsund. Stundum græði ég vel fyrstu vikuna og nenni ekki að spila meira þann mánuðinn.“

Hann lítur ekki á vinninga sem neitt stórmál. „Það er alltaf gaman að fá smápening í bankann. En fyrst og fremst lít ég þetta sem vinnu. Þegar ég er duglegur þá spila ég um 30 tíma á viku og ekkert um helgar.“

Hann byrjaði að spila póker 17 ára gamall og hefur því spilað póker í 7-8 ár. Lengstum hefur hann verið í foreldrahúsum en bjó þó í hálft ár með þremur öðrum netspilurum sem allir höfðu atvinnu af þessu. „Einn okkar græddi ekki. Hann var á sléttu yfir þann tíma sem við bjuggum saman.“

Hann spilar yfirleitt á um 20 borðum í einu og notar ekki sérstök hjálparforrit.

Hann viðurkennir að hann lifi lúxuslífi og þrátt fyrir allt vinningsféð á hann ekki krónu sem hann hefur lagt til hliðar. „Ég lifi mánuð fyrir mánuð. Ef ég væri agaðri gæti ég grætt mun meira. Í þessu sem öðru er mjög mikilvægt að halda rútínu og lifa heilbrigðu lífi.“

Aðspurður hvernig hann nálgast vinningsféð segir hann.

„Annaðhvort selur maður dollara í gegnum facebook eða tekur þetta út í gegnum síður eins og paypal sem er í raun nokkurs konar kreditkortareikningur.“