Maður stendur við brak úr kirkju.
Maður stendur við brak úr kirkju.
Að minnsta kosti 32 þúsund hús skemmdust í jarðskjálftanum í suðurhluta Mexíkó á þriðjudag. Aðeins 13 manns slösuðust í skjálftanum, sem mældist 7,4 stig á Richter. Mest var eyðileggingin í Guerrero-ríki þar sem skjálftinn átti upptök sín.

Að minnsta kosti 32 þúsund hús skemmdust í jarðskjálftanum í suðurhluta Mexíkó á þriðjudag. Aðeins 13 manns slösuðust í skjálftanum, sem mældist 7,4 stig á Richter.

Mest var eyðileggingin í Guerrero-ríki þar sem skjálftinn átti upptök sín. Þar skemmdust 30 þúsund hús. 40 eftirskjálftar fylgdu skjálftanum.