Verðlaun Norska skáldkonan Merethe Lindstrøm tekur við Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs 2012 í hátíðarsal Háskóla Íslands í gærkvöldi.
Verðlaun Norska skáldkonan Merethe Lindstrøm tekur við Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs 2012 í hátíðarsal Háskóla Íslands í gærkvöldi. — Morgunblaðið/Ómar
Norska skáldkonan Merethe Lindstrøm fékk Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2012 afhent við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í gærkvöldi, en þetta er í fyrsta sinn sem tilkynnt er hver hlýtur verðlaunin og þau afhent sama dag.

Norska skáldkonan Merethe Lindstrøm fékk Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2012 afhent við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í gærkvöldi, en þetta er í fyrsta sinn sem tilkynnt er hver hlýtur verðlaunin og þau afhent sama dag. Verðlaunin fær Lindstrøm fyrir skáldsöguna Dager i stillhetens historie sem kom út á norsku á síðasta ári og hlaut meðal annars bókmenntaverðlaun gagnrýnenda í Noregi.

Merethe Lindstrøm fæddist Bergen 1963, ólst upp Hammerfest, Stord og Høland, en býr nú í Ósló. Fyrsta bók hennar var smásagnasafnið Sexorcisten og andre fortellinger sem kom út 1983, en síðan hafa komið út nokkur smásagnasöfn, skáldsögur og ein barnabók. Smásagnasafnið Gjestene , sem kom út 2007, var tilnefnt til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2008.

Dager i stillhetens historie segir frá gömlum hjónum, Evu og Símoni, þar sem Símon þjáist af elliglöpum. Hjónin hafa ekki rætt mikið saman í gegnum árin og er svo komið að Símon er nánast hættur að tala. Það er helst að þau ræða um hversdagslega hluti en fortíðin er sem lokuð bók og hvorugt þeirra hefur sagt dætrunum þrem frá fortíð Símonar. Dæturnar leggja foreldrum sínum lið sem mest þær mega, en ráða síðan stúlku frá Litháen, Marija, sem verður fljótlega ómetanleg hjálparhella, en harkalegt tilsvar verður til þess að glufa opnast í þagnarmúr fortíðarinnar og smám saman birtast óþægileg sannindi sem verða til þess að brestir koma fjölskyldumyndina.

Merethe Lindstrøm er tíundi Norðmaðurinn sem fær verðlaunin, en þau voru fyrst veitt 1962. Hún er líka tíunda konan til að hljóta þau.

Gyrðir Elíasson fékk Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011.