Flokksbræður Steingrímur og Ögmundur á einum funda VG.
Flokksbræður Steingrímur og Ögmundur á einum funda VG. — Morgunblaðið/Ómar
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra staðfestir við Morgunblaðið að öryggisverðir gæti öryggis hans og fjölskyldu hans við heimili þeirra í Vesturbæ Reykjavíkur.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra staðfestir við Morgunblaðið að öryggisverðir gæti öryggis hans og fjölskyldu hans við heimili þeirra í Vesturbæ Reykjavíkur. Ögmundur vildi að öðru leyti ekkert tjá sig, af ástæðum sem ekki væri hægt að ræða opinberlega.

Gæta fjölskyldu Steingríms

Þá staðfesti Ögmundur að það sama ætti við um Steingrím J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, þegar spurt var hvort sólarhringsgæsla væri við heimili formanns VG í Reykjavík.

Ögmundur vildi ekki ræða hvers vegna hús Steingríms væri vaktað.