Skúli Hansen skulih@mbl.is „Við vorum mjög á einu máli um að þetta væri fáheyrð ósvífni,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um þingflokksfund VG í gær en báðir stjórnarflokkarnir boðuðu til skyndifunda þar sem m.a.

Skúli Hansen

skulih@mbl.is

„Við vorum mjög á einu máli um að þetta væri fáheyrð ósvífni,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um þingflokksfund VG í gær en báðir stjórnarflokkarnir boðuðu til skyndifunda þar sem m.a. var rætt bréf framkvæmdastjórnar ESB um aðkomu þess að Icesave-deilu fyrir EFTA-dómstólnum.

„Mér finnst full ástæða til þess að setjast yfir endurskoðun á þessu viðræðuferli öllu,“ segir Ögmundur. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, segir bréf ESB óhjákvæmilega hafa áhrif á andrúmsloft samskipta við Evrópusambandið.

„Mér finnst auðvitað að ríkisstjórnin öll eigi að segja af sér, en klúður í þessu sambandi er í mínum huga enn eitt kornið í þann mæli,“ segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður hvort utanríkisráðherra beri að segja af sér embætti í ljósi þess að honum láðist að hafa samráð við Alþingi um Icesavemálið en eins og kom fram í fréttum í gær þá hafði ráðherrann fengið að vita um áætlanir ESB í þeim efnum með bréfi dagsettu hinn 27. mars sl. Birgir telur að ljóst sé að endurskoða þurfi aðildarviðræðurnar. „Það er annaðhvort barnaskapur eða hreinn blekkingaleikur ef menn halda því fram að þessi fjandsamlega aðgerð af hálfu ESB hafi engin áhrif á aðildarviðræðurnar,“ segir Birgir.

Kom Jóhönnu á óvart
» Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vissi fyrst af bréfi ESB er sagt var frá því í fjölmiðlum í vikunni.
» Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist hafa reiknað með að þingmenn fylgdust með málinu.