Á dögunum var opnuð ný ferðaskrifstofa, Gaman Ferðir. Ferðaskrifstofan Gaman Ferðir leggur áherslu á fjölbreyttar sérferðir en meðal annars verða í boði fótboltaferðir, borgarferðir, fjölskylduferðir, golfferðir, ævintýraferðir, gamanferðir og tónleikaferðir. Gaman Ferðir eru í samstarfi með Wow air en hlutverk Gaman Ferða er að bjóða sérferðir á alla áfangastaði Wow air. Nánari upplýsingar um ferðir Gaman Ferða er að finna á www.gaman.is.
Fyrirtækið hafði aðeins verið starfandi í 3 mínútur þegar fyrsta ferðin seldist, að því er segir í tilkynningu. Það var hann Jóhann Gunnar Stefánsson sem keypti fyrstu ferðina en hann og Sigrún Dóra Jónsdóttir ætla að skella sér á tónleika Madonnu í London í júlí. Þór Bæring Ólafsson, framkvæmdastjóri Gaman Ferða, heimsótti Jóhann Gunnar og færði honum smá gjöf í tilefni þess að hann var fyrsti viðskiptavinur fyrirtækisins.