Leiðtogi Graham Gouldman er eini upprunalegi meðlimurinn í dag.
Leiðtogi Graham Gouldman er eini upprunalegi meðlimurinn í dag.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Hljómsveitin 10cc var ein af merkari sveitum áttunda áratugarins, skipuð smellasmiðum sem höfðu allir starfað á bak við tjöld tónlistarbransans í þónokkur ár, sem lagasmiðir og leiguspilarar.

Arnar Eggert Thoroddsen

arnart@mbl.is Hljómsveitin 10cc var ein af merkari sveitum áttunda áratugarins, skipuð smellasmiðum sem höfðu allir starfað á bak við tjöld tónlistarbransans í þónokkur ár, sem lagasmiðir og leiguspilarar. Sveitin átti blómaskeið sitt þá en hefur starfað fram á þennan dag í ýmsum myndum... og hefur reyndar aldrei haft meira að gera, segir Gouldman

Gamlir og ungir

-Hvernig komu þessir tónleikar eiginlega til?

„Hmmm... ég eiginlega veit það ekki ef ég á að vera hreinskilinn. Það var bara haft samband við umboðsskrifstofuna. Þeir segja okkur hvert við eigum að fara og við förum. Við bara hlýðum (hlær).“

-Það er rífandi gangur í bandinu um þessar mundir, ekki rétt?

„Jú, það er alltaf meira og meira að gera. Við höfum gaman af þessu og svo lengi sem það er eftirspurn þá sinnum við henni.“

-Hver er skýringin? Endurnýjaður áhugi á tónlist frá áttunda áratugnum eða...

„Já, ætli það ekki. Hún er svolítið forvitnileg, samsetningin á áhorfendahópnum. Við fáum þetta fólk sem fylgdist með okkur í upphafi en líka slatta af ungu fólki. Ég spyr sjálfan mig, af hverju? Ólst það upp við þessa tónlist, finnur það þetta á netinu? Ég veit það ekki. En ég fagna því að það komi líka.“

-Hljómsveitin virðist vera í miklum metum hjá „tónlistarnördum“ sem spá mikið og spekúlera í bandinu. Menn sem lesa blöð eins og Record Collector líkt og það væri biblían sjálf...

„(Hlær)...já, og þeir eiga von á góðu í ár þar sem við fögnum 40 ára afmælinu. Það kemur út veglegur safnkassi, fyrsti safnkassinn sem er helgaður bandinu.“

Hinn hugsandi maður

-Það er oft talað um 10cc sem hljómsveit hins hugsandi manns. Textar oft glúrnir og sniðuglegar vísanir í poppsöguna í lagasmíðunum. Hvað segir þú um þá mynd? Var þetta meðvitað?

„Nei. Við vorum bara að hugsa um að búa til góð lög og góðar plötur. Þetta var ekkert planað eða neitt. Farsældin var ómeðvituð ef svo mætti segja.“

-Það er merkilegt að í upprunalega bandinu voru allir meðlimir lagasmiðir. Þú og Eric Stewart voruð teymi og síðan Kevin Godley og Lol Creme...

„Við komum allir úr mjög ólíkum áttum og vorum undir áhrifum frá mismunandi hlutum þó að við ættum um leið ýmislegt sameiginlegt. Dýrkuðum eðlilega allir Bítlana, Beach Boys og slíkar snilldarsveitir. En tónlistin sem við gerðum var bara fyrir okkur. Við vorum ekki að elta neina tískustrauma eða slíkt.“

-Hvernig varð bandið eiginlega til upprunalega? Þið voruð allið leiguspilarar, upptökustjórar, útsetjarar og lagasmiðir en það snerist allt um aðra listamenn.

„Við vorum alltaf að vinna í hljóðverinu okkar, Strawberry Studios í Stockport, og þegar það var frír tími þar settumst við niður, sömdum lög og hljóðrituðum þau. Og einn daginn föttuðum við allt í einu að þetta væri bara nokkuð gott. Og byrjuðum að gefa út sem 10cc. Og restin er í sögubókunum.“

Hræðileg föt og hár

-Hvernig upplifðir þú eiginlega þennan áratug tónlistarlega, þ.e. áttunda áratuginn?

„Þetta var mjög fjölbreytilegt. Það var proggrokk og þessi hátimbraða tónlist öll. En svo var líka glyspoppið, hljómsveitir eins og Sweet sem bjuggu til frábær popplög. Þetta var mjög áhugaverður áratugur... hann var reyndar alveg hræðilegur þegar kom að fötum og hári. Því miður eru til ljósmyndir og myndbönd sem sanna þetta. Það eru álögin sem fylgja því að vera í hljómsveit sem starfaði á áttunda áratugnum.“