Ásmundur Þór Sveinsson
Ásmundur Þór Sveinsson
Eftir Ásmund Þór Sveinsson: "Umræddur glæfraakstur raskar næturró íbúa í stórum hluta Vesturbæjar og stofnar lífi vegfarenda í hættu."

Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að ofsaakstur við Ánanaust hefur fyrir löngu sprengt öll þolinmæðismörk íbúa á svæðinu og berast nú hörð viðbrögð frá íbúum annarra hverfa í Reykjavík. Eins og margoft hefur komið fram er þetta ekki nýtt af nálinni, en eftir að myndbandsupptökur birtust í sjónvarpi og á vefmiðlum þá spyrja sig margir hvernig slíkt getur viðgengist til lengri tíma. Þarna setja ökuþórar sjálfa sig, áhorfendur og grunlausa vegfarendur í mikla og tilefnislausa hættu. Maður getur því ekki annað en velt fyrir sér raunveruleikatengslum þeirra sem stunda þennan akstur.

Nýverið var haldinn aðalfundur Sjálfstæðisfélags Vestur- og Miðbæjar og var þetta mál ofarlega á baugi. Öll vorum við sammála um að aksturinn væri vandamál og að finna þyrfti lausn sem myndi binda enda á þessa óværu. Félagið sendi í kjölfarið frá sér eftirfarandi ályktun:

„Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Vesturbæ og Miðbæ skorar á lögreglu og borgaryfirvöld að grípa þegar í stað til aðgerða gegn hinum mikla glæfraakstri, sem viðgengst í hverfinu að kvöld- og næturlagi. Ástandið er hvað verst við Ánanaust og á Granda en kvartanir hafa einnig borist frá íbúum við Hringbraut og Mýrargötu. Umræddur glæfraakstur raskar næturró íbúa í stórum hluta Vesturbæjar og stofnar lífi vegfarenda í hættu. Ekki er mælt með því að umræddar umferðargötur verði þrengdar eða hraðahindranir settar á þær, heldur löggæsla hert og þannig komið í veg fyrir ofsaakstur.“

Persónulega tel ég ekki rétt að afmarka lausnina við þetta svæði enda vinnur það ekki á rót vandans. Til að finna varanlega lausn tel ég mikilvægara að koma upp aðstöðu utan við bæjarmörk þar sem umræddur hópur, auk annarra áhugasamra, getur iðkað ökukúnstir sínar í sátt við samfélagið. Þetta tel ég vera þungamiðju málsins. Þetta heyrir að sjálfsögðu til auk hertrar löggæslu enda ber borgaryfirvöldum og lögreglunni að uppræta þetta samfélag sem þarna hefur sprottið upp. Hvaða aðgerðir sem þau velja skulu þær vera af vandvirkni valdar enda mikil atvinnustarfsemi á Granda. Þar eru fyrirtæki sem stunda slíkan iðnað að greiður aðgangur flutningabíla og annarra vinnutækja er nauðsynlegur. Því má ekki leggjast í skotgrafir og berjast gegn almennri umferð á svæðinu.

Nú er mál fyrir borgarstjórn að bregðast skjótt og örugglega við þeirri óværu sem Vesturbæingar búa við enda löngu kominn tími á úrlausn. Einnig vil ég hvetja lögreglu til þess að láta ekki deigan síga í baráttunni gegn glæfraakstri og styð heilshugar að henni verði veitt viðeigandi vopn í þeirri baráttu.

Höfundur er formaður Sjálfstæðisfélags Vestur- og Miðbæjar.

Höf.: Ásmund Þór Sveinsson