— Ljósmynd/Eyþór Harðarson
Heimaey VE 1, nýtt og fullkomið fiskiskip Ísfélags Vestmannaeyja, verður formlega afhent á þriðjudaginn kemur, 17. apríl. Skipið var smíðað í ASMAR-skipasmíðastöðinni í Síle.

Heimaey VE 1, nýtt og fullkomið fiskiskip Ísfélags Vestmannaeyja, verður formlega afhent á þriðjudaginn kemur, 17. apríl. Skipið var smíðað í ASMAR-skipasmíðastöðinni í Síle.

Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja, gerir ráð fyrir því að skipið leggi af stað í siglinguna heim til Íslands í næstu viku. Áætlað er að siglingin taki um þrjár vikur. Þegar skipið kemur heim verður farið að búa það veiðarfærum og stilla ýmsan búnað. „Það er heilmikið sem þarf að gera til að koma skipinu í stand,“ sagði Stefán. Hann sagði að ef enn verður kolmunnaveiði þegar skipið kemur til landsins gæti vel verið að það yrði farinn einn túr á kolmunna til prufu.

Skipstjóri verður Ólafur Einarsson og mun hann sigla skipinu heim ásamt áhöfn. gudni@mbl.is