Unnið er að miklum endurbótum á Laugardalslaug og vegna framkvæmdanna verður laugin lokuð í þrjá daga frá mánudegi til miðvikudags. Hún verður opnuð á ný kl. 8 sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl.

Viðgerðir hafa staðið yfir undanfarna mánuði og hafa þær gengið vel þrátt fyrir tíðarfar, að sögn Reykjavíkurborgar. Tjaldað var yfir stóran hluta framkvæmdasvæðis svo mögulegt væri að vinna verkið á þessum árstíma.

Meðal þess sem verður gert á meðan laugin er lokuð er að slá undan nýrri göngubrú, taka að mestu niður vinnuaðstöðu og yfirbreiðslur, mála potta, tengja nuddpott og koma fyrir nýju öryggishandriði. Laugin verður einnig tæmd og þrifin.