Mótmæli í Kaíró.
Mótmæli í Kaíró.
Tugir þúsunda manna komu saman á Tahrir-torgi í Kaíró í gær til þess að mótmæla herforingjastjórninni í Egyptalandi.

Tugir þúsunda manna komu saman á Tahrir-torgi í Kaíró í gær til þess að mótmæla herforingjastjórninni í Egyptalandi. Hosni Mubarak missti völdin í fyrra og eiga forsetakosningar að fara fram í næsta mánuði, en mótmælendur telja að ráðandi herforingjar hafi „rænt“ byltingunni.

Margir hópar tóku þátt í mótmælunum, meðal annars Bræðralag múslíma.