Kollóttur kynbótagripur Bogi frá Heydalsá hefur nýst vel á Heydalsá og sauðfjárbúum um allt land eftir að hann var keyptur á sæðingastöð.
Kollóttur kynbótagripur Bogi frá Heydalsá hefur nýst vel á Heydalsá og sauðfjárbúum um allt land eftir að hann var keyptur á sæðingastöð.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Hann varð til af tilviljun, eins og allar skepnur,“ segir Ragnar Bragason, sauðfjárbóndi á Heydalsá í Steingrímsfirði, um hrútinn Boga frá Heydalsá. Bogi var talinn besti kynbótahrúturinn á síðasta ári.

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

„Hann varð til af tilviljun, eins og allar skepnur,“ segir Ragnar Bragason, sauðfjárbóndi á Heydalsá í Steingrímsfirði, um hrútinn Boga frá Heydalsá. Bogi var talinn besti kynbótahrúturinn á síðasta ári.

Bogi var fæddur hjá Ragnari á Heydalsá árið 2004. Hann var notaður á búinu í upphafi. „Hann reyndist strax vel, það kom í ljós þegar fyrstu lömbin undan honum fæddust. Þau voru vel gerð og fitulítil í sláturhúsi. Hann sannaði sig svo enn frekar þegar dætur hans fóru að bera, þær hafa reynst afskaplega góðir gripir til kynbóta,“ segir Ragnar.

Bogi hefði vel getað endað í sláturhúsi sitt fyrsta haust. Ragnar segir að lömbin séu vigtuð þegar þau koma af fjalli og þau álitlegustu tekin frá og síðan mæld og metin af ráðunautum. „Hann kom vel út úr þessu mati og var þessvegna settur á. Það er samt alltaf þannig að menn þurfa að velja á milli einhverra hrúta og tilviljun getur ráðið nokkru en einnig er litið til reynslunnar af mæðrum þeirra og feðrum,“ segir Ragnar.

Margar ær undan Boga

Ragnar treystir mjög á Boga við ræktunarstarfið. Þannig eru á áttunda tug ánna á búi hans undan honum, á liðlega 600 kinda búi. Sjaldgæft er að svo stór hluti fjárstofns sé frá einum hrúti, að sögn Ragnars.

Ráðunautar og starfsmenn sæðingastöðvanna eru sífellt að leita að efnilegum hrútum. Þeir skoða niðurstöður skýrsluhalds í sauðfjárrækt. Ragnar segir að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur hafi fljótlega farið að fylgjast með Boga og hann var síðan keyptur á sæðingastöð.

„Bogi var gríðarlega mikið notaður þau þrjú ár sem hann var á sæðingarstöðvunum. Hann hefur skilað fituminni skrokkum en nokkur annar kollóttur hrútur sem komið hefur fram,“ segir Lárus G. Birgisson, sauðfjárræktarráðunautur Búnaðarsamtaka Vesturlands.

Lárus segir að lögð hafi verið áhersla á að rækta fyrir minni fitu. Bogi hafi staðið sig vel í því og einnig skilað lömbum með góða vöðvafyllingu. „Svo er hann hreinhvítur með góða ull og skilar frábærum dætrum sem mjólka vel,“ segir Lárus.

Bogi hefur mikil og vaxandi áhrif í sauðfjárræktinni. Sjálfur var Bogi mikið notaður á sæðingastöðvunum og synir hans hafa verið teknir til sæðinga og fleiri bætast við næsta haust. Þá eru hrútar frá Heydalsá vinsælir þegar bændur víða um land hafa verið að byggja upp nýja stofna eftir niðurskurð. „Ég hef selt töluvert af hrútum undan honum. Þeir hafa flestir sannað sig sem afskaplega góðir gripir til kynbóta,“ segir Ragnar.

Minna úrval til kynbóta

Hyrnda féð hefur haft forskot á það kollótta. Miklu fleira hyrnt fé er til í landinu og því meira úrval til kynbóta. Þessi munur hefur þó verið að minnka, að sögn Lárusar. Samt er það svo að einn afburða kynbótahrútur getur haft mikil áhrif í kollótta stofninum. „Það hefur sennilega enginn kollóttur hrútur haft jafnmikil áhrif í lifanda lífi og Bogi. Hann mun áfram hafa áhrif í gegn um syni og dætur.“

Bogi var felldur á árinu 2010 og hafði þá verið notaður í þrjú ár á sæðingastöð.

GOSI FRÁ YTRI-SKÓGUM

Sýndi yfirburði við fyrstu skoðun

Sæðingastöðvarnar verðlauna árlega bestu kynbótahrútana. Verðlaunin voru afhent í lok málþings um sauðfjárræktina sem fram fór að loknum aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda á dögunum.

Besti lambhrúturinn (lambafaðirinn) 2010-2011 var Gosi frá Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum. Ræktandi hans er Sigurður Sigurjónsson, bóndi þar. Besti alhliða fullorðni hrúturinn var Bogi frá Heydalsá en hann var fæddur Ragnari Bragasyni bónda þar.

Gosi var fæddur 2009. Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur sagði við þetta tækifæri, að því er fram kemur í Bændablaðinu, að hann hefði sýnt strax árið eftir einhverja mestu yfirburði við skoðun sem sést hefðu. Hann á nú þegar fjölda afkomenda sem bendir til að hann hafi verið vinsæll þegar bændur völdu sér sæðingahrúta á fengitímanum.