Heimsókn Í frétt frá fréttaveitu Reuters segir að Íslandsheimsókn ráðherrans hafi kynt undir áhyggjum í Evrópu af því að Kínverjar hyggist nýta sér efnahagsvanda Íslendinga til að ná undirtökum á norðurslóðum.
Heimsókn Í frétt frá fréttaveitu Reuters segir að Íslandsheimsókn ráðherrans hafi kynt undir áhyggjum í Evrópu af því að Kínverjar hyggist nýta sér efnahagsvanda Íslendinga til að ná undirtökum á norðurslóðum. — Morgunblaðið/Kristinn
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fréttaskýring Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.

Fréttaskýring

Hólmfríður Gísladóttir

holmfridur@mbl.is

Tveggja daga opinber heimsókn Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, hófst í gær og átti ráðherrann bæði fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og öðrum ráðherrum úr ríkisstjórn Íslands og forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Aðalefni fundanna voru viðskipta- og efnahagsmál, fjárfestingar og samstarf, en bæði Jóhanna og Ólafur ræddu einnig um stöðu mannréttindamála í Kína við forsætisráðherrann. Heimsóknin hefur þegar skilað sínu þar sem skrifað var undir sex samninga að loknum fundi forsætisráðherranna og annarra embættismanna í Þjóðmenningarhúsi í gær en á morgun mun Wen kynna sér jarðhitanýtingu á Íslandi og skoða Þingvelli, Gullfoss og Geysi.

Forsætisráðherrann kínverski lenti ásamt fríðu föruneyti í Keflavík laust fyrir hádegi í gær en með honum í för var hundrað manna fylgdarlið, þeirra á meðal ellefu ráðherrar, tuttugu og átta háttsettir embættismenn og tuttugu blaðamenn frá tveimur stærstu ríkisfjölmiðlum Kína. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tóku á móti Wen undir hljóðfærablæstri lúðrasveitar, sem lék þjóðsöngva landanna við tilefnið.

Þakkaði góðar móttökur

Talsverð öryggisgæsla er í kringum heimsókn forsætisráðherrans og var hluta Hverfisgötu m.a. lokað á meðan forsætisráðherrarnir og embættismenn funduðu í Þjóðmenningarhúsi eftir hádegi.

Við upphaf fundarins, þar sem m.a. var rætt um tvíhliða samstarf ríkjanna, viðskiptatækifæri og starfsemi íslenskra fyrirtækja í Kína, sagðist Jóhanna fagna því að fundurinn væri haldinn á þeim tímamótum þegar 40 ár væru liðin frá því að Ísland og Kína tóku upp stjórnmálasamband. Þá sagði hún ánægjulegt að aukin samstarfstækifæri hefðu skapast fyrir fyrirtæki í löndunum tveimur og einnig að það hefði komið henni á óvart við undirbúning heimsóknar forsætisráðherrans hversu mörg íslensk fyrirtæki væru með hluta starfsemi sinnar í Kína.

Forsætisráðherrann kínverski þakkaði ríkisstjórn Íslands og íslensku þjóðinni góðar móttökur og sagðist m.a. samgleðjast Íslendingum sem hefðu verið að fagna fyrsta degi sumars.

Að fundi loknum var skrifað undir samningana sex. Utanríkisráðherrar ríkjanna tveggja undirrituðu rammasamning ríkisstjórna Íslands og Kína um norðurslóðasamstarf og utanríkisráðherra Íslands, Össur Skarphéðinsson, og ráðherra hafmála í Kína undirrituðu samkomulag byggt á rammasamningnum um aukið samstarf á sviði sjávar- og norðurslóðarannsókna.

Þá skrifuðu Össur og ráðherra auðlinda- og landnýtingar í Kína undir samkomulag um jarðhitasamstarf í þróunarríkjum og starfandi iðnaðarráðherra og forstjóri kínverska fyrirtækisins BlueStar undirrituðu sameiginlega viljayfirlýsingu íslenska ríkisins og BlueStar um byggingu kísilmálmvinnslu, allt að 65 þúsund tonn. BlueStar er aðaleigandi Elkem í Noregi, sem aftur er eigandi Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga.

Efnahags- og viðskiptamál voru þó ekki einu málin á dagskrá fundarins í Þjóðmenningarhúsi því Jóhanna ræddi m.a. um stöðu mannréttindamála í Kína, samfélagsleg réttindi og alþjóðlegar skuldbindingar við kollega sinn og kynnti fyrir honum hugmyndir um aukið samstarf Íslands og Kína á sviði jafnréttismála. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, notaði einnig tækifærið til að ræða um mannréttindarmál við forsætisráðherrann kínverska, sem heimsótti Bessastaði seinnipart dags og átti fund með forsetanum áður en hann hélt til kvöldverðar í Hörpu.

Ræddu fríverslunarsamning

Fyrr um daginn átti Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fund með Chen Deming, viðskiptaráðherra Kína sem fer með utanríkisviðskipti, en ráðherrarnir ræddu m.a. yfirstandandi fríverslunarsamningaviðræður Íslands og Kína. Óskaði utanríkisráðherra eftir því að tollalækkanir á fiskafurðum tækju gildi strax við gildistöku samningsins og eftir því að loftferðasamningur ríkjanna yrði útvíkkaður. Báðir ráðherrar fögnuðu auknum viðskiptum milli landanna.

Wen mun á morgun skoða Þingvelli, Gullfoss, Geysi, Kerið og Hellisheiðarvirkjun í fylgd ráðherra og ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins. Hann er sjálfur jarðfræðingur að mennt og mun ætla að kynna sér jarðhitanýtingu á Íslandi.

Mótmæltu mannréttindabrotum kínverskra stjórnvalda

• Friðsamleg mótmæli við Hörpu og Þjóðmenningarhús

Efnt var til mótmæla við Hörpu í gærkvöldi, þar sem Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, snæddi kvöldverð ásamt fylgdarliði sínu og íslenskum ráðamönnum. Þegar mest lét tóku um hundrað manns þátt í mótmælunum en hópurinn samanstóð m.a. af Vinum Tíbets og stuðningsmönnum Amnesty International, sem mættir voru til að mótmæla mannréttindabrotum kínverskra stjórnvalda.

Fólkið stóð við framhlið Hörpu en Wen fór inn um bílakjallara og því ólíklegt að hann hafi orðið var við mótmælin. Hins vegar var baulað á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra þegar hún gekk inn í bygginguna. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, var ein þeirra sem tóku þátt í og hvatti til mótmælanna en hún er formaður Vina Tíbets.

Fyrr um daginn tóku nokkrir mótmælendur sér stöðu við Þjóðmenningarhúsið, þar sem Hverfisgötu hafði verið lokað, en þeir báru m.a. skilti þar sem farið var fram á að forsætisráðherrann kínverski tæki á mannréttindabrotum gagnvart meðlimum Falun Gong í Kína.

Mótmælin fóru öll friðsamlega fram.

holmfridur@mbl.is