Frumvörp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða hafa neikvæð áhrif, segir bæjarráð Grindavíkur.
Frumvörp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða hafa neikvæð áhrif, segir bæjarráð Grindavíkur. Afleiðingar verða þær að aflaheimildir dragast saman um á annað þúsund tonn og tekjur Grindavíkurbæjar dragast saman, segir bæjarráð sem bendir á að sjávarútvegur í Grindavík skapi um 1.000 störf.