Rokk! Ólíkindatólið Jack White í ham.
Rokk! Ólíkindatólið Jack White í ham. — AFP
Aðstandendur Hróarskelduhátíðarinnar héldu blaðamannafund á fimmtudaginn sem var streymt beint á netinu. Samtals voru tilkynntar 93 nýjar hljómsveitir og listamenn til leiks.
Aðstandendur Hróarskelduhátíðarinnar héldu blaðamannafund á fimmtudaginn sem var streymt beint á netinu. Samtals voru tilkynntar 93 nýjar hljómsveitir og listamenn til leiks. Þar ber helst að nefna að tónlistarmaðurinn Jack White ætlar að koma þar fram á einu tónleikunum sínum á Norðurlöndum. Einnig var tilkynnt að á hátíðinni yrðu hljómsveitirnar The Shins, M83, The Cult, Machine Head, Janelle Monae, Alisson Kraus, Django Django, The Vaccines o.fl. o.fl. Enn á eftir að tilkynna fimmtán hljómsveitir til viðbótar. Vaninn er að bíða með tilkynna tvö til þrjú risanúmer þar til alveg undir restina.