Gylfi Gylfason
Gylfi Gylfason
Gylfi Gylfason, leikmaður Hauka, verður gjaldgengur í liðinu þegar það mætir HK í þriðja leik liðanna í undanúrslitum N1-deildarinnar í handknattleik á Ásvöllum á mánudagskvöldið þrátt fyrir að hann fengi rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks í annarri...

Gylfi Gylfason, leikmaður Hauka, verður gjaldgengur í liðinu þegar það mætir HK í þriðja leik liðanna í undanúrslitum N1-deildarinnar í handknattleik á Ásvöllum á mánudagskvöldið þrátt fyrir að hann fengi rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks í annarri viðureign liðanna í gærkvöldi. Hann fékk rauða spjaldið fyrir þrjár brottvísanir.

Haukar standa höllum fæti í einvíginu við HK eftir að hafa tapað tveimur fyrstu leikjunum. HK þarf að vinna einn leik til viðbótar til þess að leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn. 3