Vínylgleði Snorri Helgason kemur fram í Kongó í dag vegna plötubúðadagsins.
Vínylgleði Snorri Helgason kemur fram í Kongó í dag vegna plötubúðadagsins.
Alþjóðlegi plötubúðadagurinn verður haldinn hátíðlegur í dag í versluninni Kongó (Mýrargötu, Liborius-húsinu) og víðar. Þetta er dagurinn þar sem hljómplötubúðir um allan heim fagna tilvist hljómplötunnar með alls kyns tónleikum, útgáfum og viðburðum.
Alþjóðlegi plötubúðadagurinn verður haldinn hátíðlegur í dag í versluninni Kongó (Mýrargötu, Liborius-húsinu) og víðar. Þetta er dagurinn þar sem hljómplötubúðir um allan heim fagna tilvist hljómplötunnar með alls kyns tónleikum, útgáfum og viðburðum. Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason og hljómsveitin The Vintage Caravan koma fram í versluninni Kongó og skemmta gestum auk þess sem vínylplötur verða í forgrunni. Verslunin verður opnuð 13.00 og talið verður í tónleika kl. 16.00.