Tónleikar Bylgja Dís Gunnarsdóttir, sópransöngkona, kemur fram.
Tónleikar Bylgja Dís Gunnarsdóttir, sópransöngkona, kemur fram.
Ég hata tónlist! Sungið um æskuna er yfirskrift styrktartónleika sem haldnir verða í Bíósal Duushúsa á morgun, sunnudaginn 22. apríl, kl. 15.

Ég hata tónlist! Sungið um æskuna er yfirskrift styrktartónleika sem haldnir verða í Bíósal Duushúsa á morgun, sunnudaginn 22. apríl, kl. 15. Þar koma fram Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópransöngkona og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari ásamt Kór Holtaskóla. Stjórnandi kórsins er Guðbjörg Rut Þórisdóttir ení honum eru um 30 börn á aldrinum 10-15 ára. Efnisskrá tónleikanna dregur upp mismunandi myndir af æskunni í íslenskum þjóðlögum. Einnig verða fluttir ljóðaflokkarnir A Charm of lullabies eftir Benjamin Britten og I hate music eftir Leonard Bernstein en þar útskýrir hin 10 ára gamla Barbara á mjög skemmtilegan hátt hvers vegna hún hatar tónlist. Hægt er að panta miða hjá skólaritara í Holtaskóla í síma 420-3500 eða kaupa miða við innganginn.