SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Umræða um sölu á þremur eyjum í umdeildum eyjaklasa í Austur-Kínahafi hefur enn á ný hreyft við ráðamönnum í Kína og Japan, sem gera tilkalltil eyjanna eins og Taívan.
Fimm eyjar eru í klasanum. Þær eru óbyggðar, en þar eru villtar geitur og óvenjulegar tegundir af moldvörpum. Olíu- og gaslindir eru taldar vera á hafsbotni við þær og þar eru góð fiskimið. Fyrir um fjórum árum náðu Japanar og Kínverjar samkomulagi um að nýta gaslindirnar sameiginlega en ekki hefur reynt á það samkomulag.
Harðar deilur
Fyrir tæplega tveimur árum hörðnuðu deilur Japana og Kínverja enn frekar þegar skipstjóri kínversks togara sigldi á tvö japönsk strandgæsluskip við eyjarnar. Af ásettu ráði, að mati Japana. Deilan var svo hörð að Shintaro Ishihara, borgarstjóri í Tókýó, aflýsti fyrirhugaðri heimsókn til Kína.Ekki er aðeins deilt um yfirráðin á eyjunum fimm heldur einnig nafnið. Á japönsku nefnast þær Senkaku en Diaoyu á kínversku. Kínverjar segja að eyjaklasinn hafi verið kínverskur frá örófi alda, en þær hafa verið í eigu Japana að minnsta kosti frá 19. öld. Japanska ríkisstjórnin leigir fjórar þeirra og á þá fimmtu.
Kosta allt að 63,3 milljörðum
Japanski viðskiptamaðurinn Kuniki Kurihara keypti þrjár eyjanna fyrir um 40 árum, en fyrr í vikunni greindi Shintaro Ishihara frá því í heimsókn í Washington í Bandaríkjunum að hann ætti í viðræðum við Kurihara um að Tókýó keypti af honum eyjarnar. Fram kom hjá borgarstjóranum að hægt væri að ganga frá viðskiptunum á þessu ári og vernda þannig japanskt yfirráðasvæði.Makoto Watanabe, lögfræðingur Kuriharas, vill ekki greina frá hugsanlegu söluverði en eyjarnar hafa verið verðlagðar frá því að vera einskis virði upp í sem samsvarar nær 63,3 milljörðum íslenskra króna (um 500 milljónir dollara).
Hugmynd Ishihara um kaupin fellur ekki öllum Japönum vel í geð. Bent hefur verið á að eyjarnar séu í 1.900 km fjarlægð frá Tókýó og ekki sé réttlætanlegt að eyða peningum skattborgaranna á þennan hátt. Aðstoðarmaður borgarstjórans hefur í því sambandi bent á þann möguleika að sérstaklega yrði safnað fyrir kaupverðinu á meðal almennings.
Hörð viðbrögð
Ummæli borgarstjórans hafa líka kallað á sterk viðbrögð frá Kína, en Kínverjar segja að hugsanleg kaup yrðu ólögleg og marklaus. Yoshihiko Noda, forsætisráðherra Japans, áréttaði hins vegar yfirráð Japana á eyjaklasanum á þingi.
Deilur og samstarf
» Þjóðernissinninn Shintaro Ishihara var kjörinn borgarstjóri í Tókýó 1999.
» Landhelgisdeilur Japana og Kínverja haustið 2010 voru harðar og lagði hópur þingmanna í Lýðræðisflokki Japans til að Japanar íhuguðu að koma sér upp setuliði á eyjaklasanum í austur-Kínahafi.
» Efnahagslíf Kína og Japans hefur verið nátengd.