Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Vatnsbúskapur Landsvirkjunar er óvenjugóður á þessum tíma árs. Oftar en ekki er eðlilegt að lónin fyllist og fari jafnvel á yfirfall seinni part sumars. Í ár verður það þó fyrr, ef taka á mið af stöðunni í gær.

Ingvar P. Guðbjörnsson

ipg@mbl.is

Vatnsbúskapur Landsvirkjunar er óvenjugóður á þessum tíma árs. Oftar en ekki er eðlilegt að lónin fyllist og fari jafnvel á yfirfall seinni part sumars. Í ár verður það þó fyrr, ef taka á mið af stöðunni í gær.

Vatnshæð Þórisvatns og Hálslóns var í gær, nokkru áður en vorleysingar eru orðnar að einhverju gagni, álíka og í júlímánuði í fyrra. Vatnshæð Blöndulóns og Hágöngulóns var í gær álíka og um miðjan maí í fyrra.

Ef vatnshæð lónanna er skoðuð árin 2010 til 2012 má sjá að vatnshæð þeirra allra er með besta móti nú. Þannig er vatnshæð Hálslóns tæpum 20 metrum meiri 20. apríl í ár en á sama tíma í fyrra. Vatnshæð Þórisvatns er tæpum 9 metrum meiri í ár en í fyrra. Blöndulón er 5 metrum hærra í ár og Hágöngulón 1,5 metrum hærra.

Miðlunarforðinn almennt betri

„Almennt séð yfir það heila þá er miðlunarforðinn okkar mun meiri en á sama tíma í fyrra,“ sagði Guðmundur Björnsson, sérfræðingur í vinnsluáætlunum hjá Landsvirkjun, spurður um málið í gær.

„Nú eru vorleysingarnar að byrja og innrennslið að aukast þannig að það má alveg búast við að það verði snemmsumars,“ segir Guðmundur, aðspurður hvenær búast megi við að lón fyrirtækisins fyllist og fari á yfirfall í ár. Guðmundur segir að hægt sé að stýra vel miðlun í lónum neðan Þórisvatns, en að slíkt sé hvorki framkvæmanlegt í Þórisvatni né í Hágöngulóni á Sprengisandi.

Hann segir þó talsvert enn eftir í að þau lón fari á yfirfall, þó vatnsstaðan sé góð nú í sumarbyrjun. Guðmundur segir að aukið rennsli í Þjórsá neðan Búrfells verði líkast til fyrst og fremst af völdum aukins rennslis ofar í ánni með innrennsli inn í Sultartangalón, en síður vegna Þórisvatns eða Hágöngulóns.

ÞÓRISVATN EINS OG Í JÚLÍ

Fylltist í fyrra á 16 dögum

Vatnshæð Þórisvatns, sem er helsta miðlunarforðabúr fyrir fimm virkjanir fyrirtækisins á vatnasviði Þjórsár og Tungnaár, vekur sérstaka athygli.

Vatnshæðin um miðjan júlí 2011 var um 577,5 metrar og yfirfall vatnsins er á 579 metrum. Frá 14. júlí 2011 tók einungis 16 daga fyrir lónið að fyllast og fara á yfirfall, 30. júlí.

Nú eru vorleysingar að fara á fullt á svæðinu og mun því talsvert bætast af vatni í lónið í maí og svo enn meira þegar sól hækkar á lofti og jöklarnir byrja að bráðna. Það má þannig leiða líkur að því að Þórisvatn fari á yfirfall nokkuð fyrr í sumar en í fyrra, nema þó hugsanlega ef tíð í maí verður köld og leysingar hægar.

Ef hin þrjú lónin eru skoðuð þá var staða Hágöngulóns sú sama 18. maí í fyrra og tók lónið 2 mánuði að fara á yfirfall. Blöndulón var á sama stað 11. maí í fyrra og fylltist á 3 mánuðum og Hálslón var á sama stað 31. júlí í fyrra og fylltist á einum og hálfum mánuði.