Söngstjarna Þóra Einarsdóttir sópran hefur margoft sungið einsöng með Mótettukórnum í gegnum tíðina.
Söngstjarna Þóra Einarsdóttir sópran hefur margoft sungið einsöng með Mótettukórnum í gegnum tíðina. — Morgunblaðið/Ómar
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Mótettukórinn flytur Messu í c-moll og Requiem eftir W.A. Mozart á sérstökum hátíðartónleikum í dag, laugardag, og á morgun, sunnudag, kl.

Silja Björk Huldudóttir

silja@mbl.is

Mótettukórinn flytur Messu í c-moll og Requiem eftir W.A. Mozart á sérstökum hátíðartónleikum í dag, laugardag, og á morgun, sunnudag, kl. 17 báða dagana í tilefni af 30 ára afmæli Mótettukórsins og Listvinafélags Hallgrímskirkju. „Ég hef alltaf haft sérstakt dálæti á Requiem Mozarts og segja má að verkið hafi fylgt kórnum frá upphafi. Þetta var fyrsta stóra verkefnið sem kórinn flutti í Hallgrímskirkju eftir vígslu kirkjunnar árið 1986 og síðan hefur það varðað okkar tónlistarflutning, en við erum að flytja það í fjórða sinn núna,“ segir Hörður Áskelsson, stofnandi og stjórnandi Mótettukórsins.

Systurverk sakir stærðar

Aðspurður segir Hörður verkin tvö kallast mjög vel á. „Þetta eru systurverk sakir stærðar sinnar og stöðu í kirkjutónverkum Mozarts. Þau eiga það bæði sameiginlegt að vera ókláruð frá höfundarins hendi,“ segir Hörður, en eins og kunnugt er lést Mozart árið 1791 áður en honum tókst að ljúka við Requiem . Messan er einnig ófullgerð, en hana samdi Mozart í Vínarborg á árunum 1782–83, þegar hann var á hátindi ferils síns.

„Þegar maður setur þessi tvö verk saman á eina tónleika er eins og þau bæti ófullkomleika hvort annars upp,“ segir Hörður og heldur áfram: „Snilli Mozart sem tónskálds er alkunn. Hann er mjög frumlegur auk þess sem tónlist hans einkennist af mikilli fegurð. Verk hans liggja nær óperunni heldur en önnur kirkjuleg tónverk, sem gerir þessi verk mjög spennandi fyrir okkur í flutningi.“

Gamlir kórfélagar í hópi einsöngvara tónleikanna

Með kórnum leikur Kammersveit Hallgrímskirkju, en konsertmeistari er Ari Þór Vilhjálmsson. Einsöngvarar á tónleikunum eru Þóra Einarsdóttir sópran, Herdís Anna Jónasdóttir sópran, Auður Guðjohnsen alt, Elmar Gilbertsson tenór og Magnús Baldvinsson bassi. Að sögn Harðar eiga þau það öll sameiginlegt að tengjast sögu Mótettukórsins. „Þóra hefur oft komið fram á tónleikum með Mótettukórnum, nú síðast á jólatónleikum kórsins 2011, og Auður söng einsöng með kórnum í Vesper eftir Rachmaninoff auk þess sem hún er nú meðlimur í kammerkórnum Schola cantorum. Þau Herdís Anna, Magnús og Elmar voru öll félagar í Mótettukór Hallgrímskirkju áður en einsöngvaraferill þeirra hófst erlendis,“ segir Hörður og tekur fram að Magnús hafi reyndar verið einn af stofnfélögum kórsins á sínum tíma. „Það var áður en hann fór að læra söng, en vera hans í kórnum varð til þess að hann fór í söngnám.“

Meiri andstæður í túlkun

Aðspurður segir Hörður að aðeins einn kórfélagi syngi í kórnum í dag sem verið hefur með frá upphafi. „Það hefur verið mikil endurnýjun í kórnum í áranna rás, en að mínu mati hafa gæðin haldist stöðug,“ segir Hörður og bætir við: „Almennt séð eru söngkraftar betur búnir til söngs í dag þótt ég hafi reyndar alltaf verið með gott fólk. Svo er auðvitað komin heilmikil reynsla sem bæði ég og kórfélagarnir búa yfir sem er til gagns.“

Spurður hvort hann geti greint einhverja þróun í hljómi kórsins á þeim 30 árum sem hann hefur stýrt honum segist Hörður ekki dómbærastur á það sjálfur og það í raun annarra að meta. „Auðvitað er það svo að hljómurinn mótast alltaf mjög mikið af stjórnandanum og ég hef haldið í ákveðnar hugmyndir í þeim efnum. Vissulega hafa áherslur mínar sem stjórnanda þó breyst á svona löngum tíma. Þannig er óhætt að segja að ég leggi meiri áherslu á kontrasta eða andstæður í flutningi og túlkun t.d. með tilliti til hraðavals, hljóms og styrkleika,“ segir Hörður að lokum.