Silfrastaðakirkja í Skagafirði.
Silfrastaðakirkja í Skagafirði. — Morgunblaðið/Ómar
Orð dagsins: Ég er góði hirðirinn.
AÐVENTKIRKJAN:

Aðventkirkjan Reykjavík | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11 hefst með biblíufræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna. Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Birgir Óskarsson prédikar.

Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp á biblíufræðslu fyrir alla. Guðþjónusta kl. 12. Bein útsending frá kirkju aðventista í Reykjavík. Birgir Óskarsson prédikar þar.

Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11 í Reykjanesbæ hefst með biblíufræðslu. Guðþjónusta kl. 12. Þóra Sigríður Jónsdóttir prédikar.

Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Samkoma á Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 11. Björgvin Snorrason prédikar.

Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði | Samkoma í Loftsalnum í dag, laugardag, hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11. Eric Guðmundsson prédikar. Biblíufræðsla fyrir alla kl. 11.50. Boðið upp á biblíufræðslu á ensku.

Samfélag Aðventista Akureyri | Samkoma í Gamla Lundi í dag, laugardag, hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir alla. Guðsþjónusta kl. 12.

ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Guðfræðineminn Fritz Már Jörgensson prédikar og sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Kirkjukór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Krisztinar Kalló Szklenár organista og kórstjóra. Messuþjónar lesa ritningar. Kaffi.

ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ásdísi Pétursdóttur Blöndal djákna. Kór Áskirkju syngur, organisti er Magnús Ragnarsson. Kaffisopi á eftir og dagskrá í safnaðarheimilinu þar sem minnst verður sr. Gríms Grímssonar, fyrsta sóknarprests Ásprestakalls, sem orðið hefði 100 ára 21. apríl 2012.

ÁSTJARNARKIRKJA | Léttmessa kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Hjartar Howser. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Sunnudagaskóli kl. 11 og allir hafa með sér eitthvað sem þeim finnst dýrmætt. Aðalsafnaðarfundur kl. 12.15.

BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Umsjón hafa Auður, Baldvin, Finnur og Heiða Lind ásamt yngri leiðtogum.

BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Ferming kl. 11. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur.

BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Kór Breiðholtskirkju syngur og organisti er Örn Magnússon. Sunnudagaskóli er í umsjá Steinunnar Leifsdóttur. Kaffi og djús á eftir.

BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Söngur, fræðsla o.fl. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaðakirkju syngur, organisti Antonia Hevesi. Prestur er sr. Pálmi Matthíasson. Kaffi á eftir.

DIGRANESKIRKJA | Útvarpsguðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Magnús Björn Björnsson. Organisti Zbigniew Zuchowich og kór Digraneskirkju leiðir safnaðarsöng. Léttur málsverður á eftir. Sunnudagaskóli kl. 11. www.digraneskirkja.is

DÓMKIRKJAN | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar.

EMMANÚELS Baptistakirkjan | Guðþjónusta og sunnudagaskóli (Mass & Sundayschool) kl. 12 á Skólabraut 6 Garðabæ. Boðið upp á veitingar á eftir. Prestar sr. Bill Jessup og Robert Andrew Hansen. Guðþjónusta á ensku og íslensku (in English & Icelandic). Þurfi að sækja hringið í s. 8470-081.

FELLA- og Hólakirkja | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur. Tónlistarnemar annast tónlistarflutning. Guðrún Hrönn og Jóhanna taka á móti börnunum í búningapartíi. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.

FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Hressing í lokin. Almenn samkoma kl. 13.30. Tónlist og söngur, barnagæsla og Björg R. Pálsdóttir prédikar. Kaffi á eftir.

FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa kl. 14. Prestar eru sr. Hjörtur Magni Jóhannsson og sr. Bryndís Valbjarnardóttir. Kór Fríkirkjunnar leiðir tónlistina ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur orgelleikara. Barnastarf kl. 11 á kórloftinu.

GRAFARVOGSKIRKJA | Ferming kl. 10.30. Sr. Vigfús Þór Árnason og sr. Sigurður Grétar Helgason þjóna fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur, organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.

Borgarholtsskóli Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Vox Populi syngur, organisti er Stefán Birkisson. Umsjón með sunnudagasóla Anna Arnardóttir.

GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10, bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Helgu o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga og samskot í líknarsjóð kirkjunnar. Messuhópur þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur, organisti Árni Arinbjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi á eftir. Hversdagsmessa með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl. 18.10.

GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta kl. 14 í hátíðarsal á vegum Félags fyrrum þjónandi presta. Hr. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, predikar. Sr. Úlfar Guðmundsson, fyrrverandi prófastur, þjónar fyrir altari. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organista.

GUÐRÍÐARKIRKJA Grafarholti | Fermingarmessa og sunnudagsskóli kl. 11. Prestur s. Sigríður Guðmarsdóttir og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Sunnudagaskóli í umsjá Árna Þorláks Guðnasonar. Meðhjálpari Aðalstein Dalman Októsson. Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir.

HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar. Barbörukórinn syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar organista. Kaffi á eftir.

HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hefur Magnea Sverrisdóttir. Tónleikar í dag, laugardag, kl. 17 og sunnudag kl. 17. Mótettukór Hallgrímskirkju, ásamt einsöngvurum og Kammersveit, flytja Messu í C-moll og Requiem e. Mozart. Aðalsafnaðarfundur að lokinni messu.

HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Kór Ísaksskóla syngur undir stjórn Ásu Valgerðar Sigurðardóttur við undirleik Bjarkar Sigurðardóttur. Kópakórinn kemur fram undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur. Sólveig, Hreinn og Páll Ágúst leiða almennan söng. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Aðalfundur Háteigssafnaðar verður 29. apríl, eftir messu, í safnaðarheimilinu.

HJALLAKIRKJA Kópavogi | Lofgjörðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Þorvaldur Halldórsson sér um að leiða safnaðarsönginn. Sunnudagaskóli kl. 13. Sjá www.hjallakirkja.is.

HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Gospelkirkja kl. 17. Gospelkór Akureyrar syngur. Komandör Peder Refstie verður með hugvekju.

HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Samkoma kl. 17. Sigurður Ingimarsson talar.

ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 13.30 fyrir alla. Lofgjörð og fyrirbænir. Gestir frá Campus Crusade for Christ í Sviss tala. Barnastarf. Kaffi á eftir.

KÁLFATJARNARKIRKJA | Fermingarguðsþjónusta í dag, laugardag kl. 14. Kór Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn Franks Herlufsens organista. Prestur er sr. Kjartan Jónsson.

KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová kantors. Ummeð sunnudagaskóla: Þóra Marteinsdóttir og Sólveig Anna Aradóttir.

LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Kórskólinn syngur undir stjórn Þóru Björnsdóttur. Sunnudagaskólakennararnir Aron og Ingunn Huld taka þátt. Organisti er Jón Stefánsson. Kaffi á eftir.

LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Erla Björk Jónsdóttir guðfræðingur og æskulýðsfulltrúi þjónar ásamt Gunnari Gunnarssyni organista, kór Laugarneskirkju, sunnudagskólakennurum og messuþjónum. Kaffi á eftir.

LÁGAFELLSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 10.30. Prestar sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Skírnir Garðarsson. Organisti Arnhildur Valgarðsdóttir, kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Einsöngvarar Arnþrúður Ösp Karlsdóttir og Jón Magnús Jónsson. Einleikur á fiðlu Matthías Stefánsson. Meðhjálpari Arndís Linn.

LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar, Þorvaldur Halldórsson leiðir safnaðarsöng.

MOSFELLSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 13.30. Prestar sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Skírnir Garðarsson. Organisti Arnhildur Valgarðsdóttir og kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Einsöngvarar eru Arnþrúður Ösp Karlsdóttir og Jón Magnús Jónsson. Einleikur á fiðlu Matthías Stefánsson. Meðhjálpari er Arndís Linn.

NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju leiða safnaðarsöng, organisti er Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Messuþjónar aðstoða. Umsjón með barnastarfi hafa: Sigurvin, Katrín og Ari. Veitingar á eftir. Aðalsafnaðarfundur Nessóknar eftir messu.

ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Tónlistarmessa og barnastarf kl. 14. Kór safnaðarins leiðir sönginn undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar sem ásamt Jóni Rafnssyni kontrabassaleikara og Erik Qvick trommuleikara sjá um undirleikinn. Sr. Pétur Þorsteinsson þjónar fyrir altari og meðhjálpari er Petra Jónsdóttir. Aðalfundur á efri hæð Kirkjubæjar eftir messu.

SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í safnaðarheimili Grensáskirkju. Gestir frá Campus Crusade for Christ í Sviss.

SELFOSSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur er sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson. Léttur hádegisverður á eftir. Sjá www.selfosskirkja.is

SELJAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng, organisti er Tómas Guðni Eggertsson. Kvöldmessa kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar. Þorvaldur Halldórsson stýrir tónlistinni. Altarisganga.

SELTJARNARNESKIRKJA | Messa kl. 11 með þátttöku íbúa á Melabraut, Miðbraut, Unnarbraut, Vallarbraut og Valhúsabraut. Íbúar þessara gatna sjá um lestra og bænir. Jón Jónsson flytur hugleiðingu. Organisti er Bjarni Þór Jónatansson. Sóknarprestur þjónar ásamt félögum úr Kammerkór kirkjunnar. Veitingar. Sr. Hjálmar Jónsson heldur erindi kl. 17 á listahátíð kirkjunnar. Sólveig Pálsdóttir les kvæði. Agnes Amalía Kristjánsdóttir og Jóhanna Héðinsdóttir syngja. Ranata Ivan leikur undir.

SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sóknarprestur.

STÓRA Vatnshornskirkja | Messa kl. 11. Prestur Óskar Ingi Ingason. Organisti Halldór Þorgils Þórðarson og kirkjukór Dalaprestakalls leiðir sönginn.

VEGURINN kirkja fyrir þig | Fjölskyldusamkoma kl. 14. Barnastarf, lofgjörð, predikun og fyrirbæn. Högni Valsson predikar.

VÍDALÍNSKIRKJA | Eldriborgaramessa með fermingu og sunnudagaskóli kl. 11. Iðunn Gróa Gísladóttir flytur hugleiðingu. Garðakórinn og Kór eldri kennara, EKKÓ, syngja, Jóhann Baldvinsson og Bjartur Logi Guðnason stjórna. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Kaffi og kleinur á eftir.

(Jóh. 10)

(Jóh. 10)

Höf.: (Jóh. 10)