Skráning er hafin í Vinnuskóla Reykjavíkur. Búist er við að um það bil 1.800 nemendur skrái sig til starfa í Vinnuskóla. Foreldrar nemenda sjá um skráninguna í gegnum Rafræna Reykjavík líkt og í fyrra. Skráningarfrestur er til föstudagsins 18. maí.

Öllum nemendum í 9. og 10. bekk grunnskóla í Reykjavík býðst starf hjá Vinnuskólanum. Nemendur í 8. bekk eiga ekki kost á starfi í sumar.

Vinnutímabilin verða tvö, þrjár vikur í senn. Reynt verður að koma til móts við óskir flestra um val á tímabili, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.