Jón Axel Björnsson
Jón Axel Björnsson
Jón Axel Björnsson tekur á móti gestum í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum kl. 14 á morgun, sunnudag, og leiðir þá um sýningu sína Tilvist.

Jón Axel Björnsson tekur á móti gestum í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum kl. 14 á morgun, sunnudag, og leiðir þá um sýningu sína Tilvist. Á sýningunni gefur að líta ný olíumálverk og vatnslitamyndir eftir Jón Axel en þetta er fyrsta stóra sýning hans í áratug.

Aðgangur að Listasafninu er ókeypis. Sýningin stendur til 6. maí.