Bókanir á gistirými eru fleiri nú en á sama tíma í fyrra, að sögn markaðsstjóra hótela. Nú þegar er uppbókað á sumum hótelum á mesta álagstímanum í sumar. Bókunarmynstrið hefur breyst frá því sem áður var.

Bókanir á gistirými eru fleiri nú en á sama tíma í fyrra, að sögn markaðsstjóra hótela. Nú þegar er uppbókað á sumum hótelum á mesta álagstímanum í sumar. Bókunarmynstrið hefur breyst frá því sem áður var. Það ber meira á því að fólk ferðist á eigin vegum fremur en í hópferðum og ferðamenn bóka gistingu með skemmri fyrirvara en áður. Markaðsstjórum ber saman um að það sé bjart framundan. Nýjasta hótelið, Icelandair Hótel Reykjavík Marina, var fullbókað um helgina. 32