Marel Viðskiptasamningurinn sem Marel hefur gert við Kínverja er mjög stór, og samsvarar um 1-2% af ársveltu fyrirtækisins.
Marel Viðskiptasamningurinn sem Marel hefur gert við Kínverja er mjög stór, og samsvarar um 1-2% af ársveltu fyrirtækisins. — Morgunblaðið/Ernir
Marel gekk nýlega frá stærstu sölu fyrirtækisins í fiskiðnaði með samningum við fiskframleiðanda í norðausturhluta Kína. Um er að ræða nýja flæðilínu fyrir hvítfisk sem verður sérstaklega sniðin að þörfum kínverskra fiskframleiðenda.

Marel gekk nýlega frá stærstu sölu fyrirtækisins í fiskiðnaði með samningum við fiskframleiðanda í norðausturhluta Kína. Um er að ræða nýja flæðilínu fyrir hvítfisk sem verður sérstaklega sniðin að þörfum kínverskra fiskframleiðenda. Flæðilínan er meðal þess hátæknibúnaðar sem Marel sýnir á sjávarútvegssýningunni í Brussel í næstu viku. Fjárhæð samningsins samsvarar 1-2% af ársveltu Marel.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Marel.

Þar kemur fram að aðstæður á vinnumarkaði og hækkandi framleiðslukostnaður í Kína hafi skapað aukna þörf fyrir sjálfvirkni í verksmiðjum þar í landi. Vöruframboð og lausnir Marel auki framleiðsluhraða, hráefnisnýtingu og -meðferð í fiskiðnaði auk þess sem Marel bjóði upp á hugbúnaðarlausnir til öflugri framleiðslustýringar.

Auk Marel komu íslensku fyrirtækin 3X Technology og Skaginn að verkefninu.

„Þessar sérsniðnu flæðilínur voru hannaðar sérstaklega fyrir kínverskan markað,“ er haft eftir Kristmanni Kristmannssyni, söluráðgjafa Marel. „Kínverski markaðurinn er að breytast, fyrirtæki sækjast í auknum mæli eftir sjálfvirkum búnaði og tækjum í stað þess að vera með mikinn mannafla í framleiðslu. Við hjá Marel erum afskaplega ánægð með árangurinn og þær lausnir sem fyrirtækið hefur þróað í þessu samstarfi.“

Sölusamningur sem þessi er til marks um þá stefnu sem Marel hefur fylgt á alþjóðlegum markaði, að leggja enn frekari áherslu á sókn á nýmörkuðum eins og Kína þar sem vöxtur er mikill. Fiskiðnaðarsetur Marel í Qingdao mun gegna lykilhlutverki við uppbyggingu á starfseminni í Kína þar sem miklu skiptir að viðskiptavinir Marel hafi aðgang að þjónustu nálægt sínu starfssvæði.