Landsdómur Bein útsending verður á mbl.is frá uppkvaðningu dóms.
Landsdómur Bein útsending verður á mbl.is frá uppkvaðningu dóms. — Morgunblaðið/Kristinn
Dómur landsdóms í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, er endanlegur og verður ekki áfrýjað, að sögn Þorsteins A. Jónssonar, skrifstofustjóra Hæstaréttar og ritara landsdóms.

Dómur landsdóms í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, er endanlegur og verður ekki áfrýjað, að sögn Þorsteins A. Jónssonar, skrifstofustjóra Hæstaréttar og ritara landsdóms. Hins vegar er hægt að leita til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna dómsniðurstöðunnar.

Bein útsending verður á mbl.is frá landsdómi þegar hann kemur saman á mánudaginn kemur, 23. apríl, klukkan 14.00, í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Þar mun Markús Sigurbjörnsson dómsforseti lesa dóminn upp í heyranda hljóði.

Ákveðið hefur verið að leyfa upptöku á dómsuppsögunni, bæði á hljóði og mynd, og senda út beint. „Fyrirkomulag verður með þeim hætti að einungis verður leyft að hafa einn ómerktan hljóðnema hjá forseta landsdóms og eina myndavél. Hljóð þarf jafnframt að vera tengt hljóðkerfi hússins. Tveir fjölmiðlar RÚV og Stöð 2 hafa þegar óskað eftir að taka dómsuppsögu upp. Fjölmiðlar verða að koma sér saman um fyrirkomulag upptöku og bera þeir ábyrgð og allan kostnað af henni. Ef fleiri fjölmiðar óska eftir að taka upp hljóð eða mynd þurfa þeir að eiga kost á aðgangi að því,“ segir í tilkynningu frá ritara landsdóms.

Fjölmiðlarnir verða að koma sér saman um fyrirkomulag upptöku og útsendingar og tilkynna ritara landsdóms um það eigi síðar en á hádegi á mánudaginn kemur. Í tilkynningunni kemur einnig fram að í framhaldi af dómsuppkvaðningu verði dómurinn sendur til fjölmiðla með tölvupósti og um hálftíma síðar á hann að verða aðgengilegur á heimasíðu landsdóms. gudni@mbl.is