Rösk Beyoncé Knowles ætlar að fjölga jarðarbúum eitthvað.
Rösk Beyoncé Knowles ætlar að fjölga jarðarbúum eitthvað. — Reuters
Beyoncé og eiginmaður hennar Jay-Z eru ekki að tvínóna við hlutina. Þau eignuðust sitt fyrsta barn í janúar og eru strax tilbúin að eignast annað. Beyoncé hafði reynt lengi að verða ófrísk og er hún viðbúin því að sama gæti endurtekið sig.
Beyoncé og eiginmaður hennar Jay-Z eru ekki að tvínóna við hlutina. Þau eignuðust sitt fyrsta barn í janúar og eru strax tilbúin að eignast annað. Beyoncé hafði reynt lengi að verða ófrísk og er hún viðbúin því að sama gæti endurtekið sig. Dóttir tónlistarparsins, Blue Ivy, kom í heiminn í byrjunar janúar og er Beyoncé alsæl í nýja móðurhlutverkinu. Hefur hún tjáð vinum sínum að það hafi reynst vera mun minna mál en hún hélt að fæða barn og losa sig við aukakílóin af meðgöngunni, samkvæmt heimildamanni tímaritsins Star. „Beyoncé og Jay-Z vilja að Blue Ivy eignist systkin sem fyrst, þannig að það verði ekki of langt á milli þeirra,“ segir heimildamaðurinn. „Þeir sem standa þeim næst eru sannfærðir um að stutt sé í næsta barn.“