Björn Þórir Sigurðsson
Björn Þórir Sigurðsson
Björn Þórir Sigurðsson hefur verið ráðinn yfirmaður framleiðslu hjá Latabæ.
Björn Þórir Sigurðsson hefur verið ráðinn yfirmaður framleiðslu hjá Latabæ. Hann mun stýra sjónvarpsframleiðslu á öllu nýju efni Latabæjar, þar með talið þriðju þáttaröðinni sem áætlað er að fari í sýningu í 180 löndum og verður lykil barnaefni Turner-samsteypunnar næstu árin. Björn Þórir starfar náið með forstjóra félagsins, Magnúsi Scheving, og stjórn þess. Hann starfaði frá 2008 til 2011 hjá Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins og Mbl.is, en hann á að baki langan starfsferil hjá fjölmiðlafyrirtækjum og hefur menntun á því sviði.