Vogrek Verk Eiríks frá árinu 1965.
Vogrek Verk Eiríks frá árinu 1965.
Síðasta abstraktsjónin nefnist sýning á verkum Eiríks Smith frá árunum 1964-1968 sem opnuð verður í Hafnarborg á morgun kl. 15. Sýningin er þriðja í röð sýninga sem Hafnarborg heldur og kynna ólík tímabil á löngum ferli Eiríks.
Síðasta abstraktsjónin nefnist sýning á verkum Eiríks Smith frá árunum 1964-1968 sem opnuð verður í Hafnarborg á morgun kl. 15. Sýningin er þriðja í röð sýninga sem Hafnarborg heldur og kynna ólík tímabil á löngum ferli Eiríks. Flest verkanna á sýningunni eru úr safneign Hafnarborgar en safnið varðveitir fjölda verka sem Eiríkur færði því að gjöf árið 1990. Sýningarstjóri er Ólöf K. Sigurðardóttir forstöðumaður Hafnarborgar.