Í tilefni útgáfu bæklings Ferðaþjónustu bænda, Beint frá býli, og Opins landbúnaðar, „Upp í sveit“, ætla yfir 100 bæir innan þessara samtaka að hafa opið hús sunnudaginn 10. júní kl. 13.00-17.00.

Í tilefni útgáfu bæklings Ferðaþjónustu bænda, Beint frá býli, og Opins landbúnaðar, „Upp í sveit“, ætla yfir 100 bæir innan þessara samtaka að hafa opið hús sunnudaginn 10. júní kl. 13.00-17.00.

Gestir munu geta skoðað gistiaðstöðuna á bæjunum, sótt nýja bæklinginn, fengið kaffisopa, spjallað við bændur og upplifað sveitastemninguna.

Nánari upplýsingar og listi yfir þá bæi sem bjóða heim hinn 10. júní í hverjum landshluta má finna á vefsíðu Ferðaþjónustu bænda www.sveit.is.