Venjuleg sögn. V-NS
Norður | |
♠9864 | |
♥ÁDG6 | |
♦K | |
♣K1074 |
Vestur | Austur |
♠KDG72 | ♠53 |
♥K108 | ♥97532 |
♦Á42 | ♦10765 |
♣83 | ♣G9 |
Suður | |
♠Á10 | |
♥4 | |
♦DG983 | |
♣ÁD652 |
Vestur er gjafari og opnar á 1♠. Norður á enga sögn og passar, hið sama gerir austur, en suður segir auðvitað eitthvað. Hvað?
Í annarri hendi hefði verið hægt að sýna báða lágliti með 2G – „the unusual two-notrump“, eins og sögnin er nefnd samkvæmt enskri hefð. En í fjórðu hendi er ekkert „unusual“ við stökkið í 2G. Það sýnir góð spil (17-19 punkta) og mikinn styrk í opnunarlitnum. Suður getur heldur ekki doblað með einspil í hjarta, og því er ekki um annað að ræða en melda annan litinn, segja 2♦.
Þannig fór spilið af stað á öllum borðum í norsku klúbbakeppninni. Nú virðist rakið fyrir norður að krefja með 2♠, en blanki kóngurinn í tígli fór fyrir brjóstið á einum spilara og hann passaði 2♦ – óttaðist að makker tæki 2♠ sem tígulstuðning og vildi ekki fá á sig stangarstökk í 5♦.
Suður vann 2♦ með yfirslag, en 5♣ vinnast líka... með yfirslag.