Viðskiptafræðinemar frá Bifröst munu flytja Bifrastarandann í Kringluna um helgina. Þeir verða staðsettir fyrir framan verslanirnar Zöru og Hugo Boss kl. 11-19 í dag og 10-18 á morgun.

Viðskiptafræðinemar frá Bifröst munu flytja Bifrastarandann í Kringluna um helgina.

Þeir verða staðsettir fyrir framan verslanirnar Zöru og Hugo Boss kl. 11-19 í dag og 10-18 á morgun. Um er að ræða raunhæft verkefni í markaðsfræði þar sem nemendur sem að verkefninu standa fengu algerlega frjálsar hendur við markaðsherferðina. „Völdu nemendur „pop-up“ leiðina til að koma með Bifröst í bæinn með Bifrastarandann meðferðis í flösku,“ segir í tilkynningu frá nemunum.