— Morgunblaðið/Eggert
Lögreglu bárust í gær þrjár tilkynningar um innbrot í hesthús í Víðidal. Segir í frétt frá lögreglu að ekki sé ólíklegt að í framhaldinu bjóði einhverjir illa fengna hnakka og hjálma til sölu.

Reiðtygjum var einnig stolið í tveimur innbrotum í hesthús í Mosfellsbæ á dögunum og því rétt að fólk hafi þetta hugfast ef því býðst að kaupa slíkar vörur.