Hildur Hafstein segir áherslurnar í mat hafa breyst með árunum og nú sé minna pasta og brauð á borðum en áður.
Hildur Hafstein segir áherslurnar í mat hafa breyst með árunum og nú sé minna pasta og brauð á borðum en áður. — Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hildur Hafstein hannar skartgripi úr náttúrulegum orkusteinum og opnar vinnustofu í húsi með sál við Laugaveg.

Ég sæki innblástur í umhverfið og fjölskrúðugt mannlífið og þetta litla rými passar vel utan um mig og mín hugðarefni,“ segir Hildur Hafstein skartgripahönnuður sem er að koma sér fyrir á nýrri vinnustofu við Laugaveg 20b. Skartgripalína Hildar, Kora, samanstendur af litríkum, handunnum skartgripum með sterka skírskotun í búddísk mala-bönd, menningu sígauna og blómatíma hippakynslóðarinnar.

„Skartgripirnir eru unnir úr náttúrulegum orkusteinum, sterling-silfri, viðarperlum, fræjum, endurunnu gömlu skarti og gömlum textíl. Steinarnir er allir nærandi fyrir líkama og sál, hafa mikinn orkumátt og veita vellíðan.“

Kora-skartið er selt í völdum verslunum í bænum; í Epal, Kastaníu, Farmers Market, Boutique Bellu og víðar, en hluti söluandvirðis rennur til samtakanna Sól í Tógó sem vinna að uppbyggingu heimilis og skóla fyrir munaðarlaus börn í Tógó í Afríku.

Í anda fjallkonunnar

Hildur segir nýja húsnæðið halda skemmtilega utan um hönnun hennar. „Þetta er einstaklega fallegt hús með mikla sögu. Í gamla daga var þar rekið veitingahús sem hét Fjallkonan og orðið eitt og sér veitir mér innblástur. Húsið var lengi í eigu Náttúrulækningafélagsins sem er dásamleg tenging við orkusteinana sem ég vinn með. Það er því óhætt að segja að það séu góðir andar í þessu húsi.“

Hildur vildi að húsnæðið fengi á sig sem upprunalegasta mynd og lagðist því í framkvæmdir. „Ég tók til hendinni og nú fá gamlir, hlaðnir steinveggir hússins að njóta sín og mynda fallega umgjörð um litríka skartgripina. Þetta notalega og hlýja umhverfi hentar mér fullkomlega og ég hlakka til að halda áfram að skapa í þessu húsi.“

Hildur er menntaður textílhönnuður frá Listaháskóla Íslands og lærði fatahönnun í Barcelona á Spáni. Hún hefur unnið bæði sem fatahönnuður og stílisti og fengist við búningahönnun og útstillingar. Árið 2009 stofnaði hún fyrirtæki sitt, H.HAF, og hellti sér út í skartgripahönnun.

Fallegt og hollt

„Skartgripirnir komu eiginlega óvart til mín. Ég var byrjuð að gæla við silfursmíði þegar ég fór í frábært nám sem heitir Prisma. Þar fór hugmyndin á flug og Kora fæddist. Kora-línan er fallegt verkefni sem hefur gengið vel og nú eru að verða til nýir og skemmtilegir hlutir.“

Hún á fjögur börn og rekur því stórt heimili. „Ég er sæmilega dugleg að elda,“ segir hún, spurð út í verkaskiptinguna á heimilinu. „Annars sér betri helmingurinn að mestu leyti um eldamennskuna. Við borðum almennt hollan, góðan og fallegan mat. Áherslurnar hafa breyst með árunum en ég held að það sé frekar ómeðvitað. Brauð og pasta er til dæmis minna á borðum en áður, án þess að við höfum tekið ákvörðun um það sérstaklega.“

Hún segist aðallega versla í Bónus en fara í sælkeraverslanir eftir kjöti og fiski, svo sem Kjöthöllina og Fylgifiska. „Við förum stöku sinnum út að borða hér heima og mér finnst Hornið alltaf notalegt, það er algjör uppáhaldsstaður hjá strákunum okkar. Í hádeginu slær Ostabúðin öllu við, fiskurinn þar er frábær og gott að geta líka gripið með sér góðar olíur og osta. Annars fór ég á Sushi Samba um daginn og fannst hann mjög fínn; umhverfið skemmtilegt og maturinn góður.“

Í helgarmatinn heldur Hildur mest upp góða nautasteik með béarnaise-sósu og á mánudögum er léttsaltaður kinnfiskur í uppáhaldi. Hún lætur fylgja uppskrift að mánudagskvöldmatnum.

beggo@mbl.is

Léttsaltaðar þorskkinnar

þorskkinnar, léttnætursaltaðar

nýjar, íslenskar kartöflur (smælki)

smjör

graslaukur

kirsuberjatómatar

hvítvínsedik

Þorskkinnar settar í sjóðandi vatn og látnar liggja í tvær mínútur. Smjör og graslaukur úr garðinum brætt saman. Nýjar íslenskar kartöflur soðnar, best að nota smælki. Kirsuberjatómatar skornir í báta og hellt yfir smávegis af hvítvínsediki.

Mánudagsdesert

Grísk jógúrt sett í litlar skálar og hellt út á slatta af íslensku hunangi, til dæmis frá Álfsstöðum.