Edda Larsen Knútsdóttir fæddist í Reykjavík 4. október 1949. Hún lést í Nossebro, heimabæ sínum í Svíþjóð, 4. júní 2012.

Útför Eddu fór fram í Svíþjóð 20. júní 2012.

Edda Larsen, þú vinur okkar til allra ára, nú ert þú farin yfir móðuna miklu og við, Sonja systir þín og ég, ásamt svo mörgum öðrum, stöndum hnípin hérna megin á bakkanum og veifum þér í kveðjuskyni.

Bestu þakkir fyrir samveruna, hressileikann, velvildina, gjallandi hláturinn þinn sem lífgaði allt í umhverfi sínu. Takk fyrir alla góðvildina og alla endalausu gestrisnina sem ætíð fylgdi ykkur Geira. Kærustu og bestu þakkir fyrir þetta allt.

Söknuðurinn er mikill en vonin um endurfundinn er meiri og stærri.

Takk fyrir samveruna hérna megin á bakkanum.

Þínir vinir,

Þórður mágur

og Sonja systir.