Darrel Lewis
Darrel Lewis
Keflvíkingar hafa fengið til sín hinn 36 ára gamla Darrel Lewis sem mun leika með liðinu í hinni nýju Dominosdeild í körfuknattleik á næstu leiktíð.

Keflvíkingar hafa fengið til sín hinn 36 ára gamla Darrel Lewis sem mun leika með liðinu í hinni nýju Dominosdeild í körfuknattleik á næstu leiktíð. Lewis, sem er íslenskur ríkisborgari, lék með Grindavík árin 2002-05 við góðan orðstír en hann skoraði að meðaltali 26,6 stig fyrir liðið þessi ár. Síðan þá hefur Lewis leikið á Ítalíu og í Grikklandi en hann skoraði 15 stig að meðaltali í grísku 2. deildinni á síðustu leiktíð.

Í samtali við heimasíðu Keflavíkur segist Lewis hlakka til að koma aftur til landsins, og jafnframt að fá að gæða sér á samloku á Nonnabita. sindris@mbl.is