Kaffi Ein mynda Dagmarar.
Kaffi Ein mynda Dagmarar.
Nýbrennt og malað er yfirskrift sýningar á nýjum olíumálverkum eftir Dagmar Agnarsdóttur sem opnuð verður í Menningarsal Hrafnistu í Hafnarfirði í dag kl. 14.
Nýbrennt og malað er yfirskrift sýningar á nýjum olíumálverkum eftir Dagmar Agnarsdóttur sem opnuð verður í Menningarsal Hrafnistu í Hafnarfirði í dag kl. 14. Þetta er önnur einkasýning Dagmarar á Íslandi eftir að hún sneri heim frá langvarandi námi og starfi í Asíu og Afríku.

Á sýningunni getur að líta sextán olíumyndir, einkum af konum í margvíslegum aðstæðum, flestum spaugilegum, þar sem áhersla er lögð á tengsl kvenna við umhverfi sitt og náttúru.

Dagmar hefur lagt stund á nám og kennslu í málun, teikningu og margháttaðri myndgerð annarri í Malasíu, Taílandi, Indónesíu, Kenýa og á Íslandi. Hún er félagi í SÍM (Sambandi íslenskra myndlistamanna).