Hækkun Flugfargjöld hækkuðu mest í júnímánuði, eða um 11%.
Hækkun Flugfargjöld hækkuðu mest í júnímánuði, eða um 11%. — Morgunblaðið/Ernir
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,50% í júní frá fyrra mánuði. Er þetta þvert á væntingar greiningardeilda sem höfðu spáð því að vísitalan myndi haldast óbreytt á milli mánaða eða hækka um 0,1%.

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,50% í júní frá fyrra mánuði. Er þetta þvert á væntingar greiningardeilda sem höfðu spáð því að vísitalan myndi haldast óbreytt á milli mánaða eða hækka um 0,1%.

Þetta þýðir að verðbólgan mælist 5,4% á tólf mánaða tímabili og er óbreytt frá fyrra mánuði. Miðað við spár greiningardeilda hefði verðbólgan, mæld á tólf mánaða tímabili, átt að fara niður í 4,9-5%.

Flugfargjöld hækkuðu um 11%

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,61% frá maí. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkað um 5,5%. Undanfarna þrjá mánuði hafa bæði vísitala neysluverðs og vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkað um 1,3% sem jafngildir 5,2% verðbólgu á ári.

Verð á bensíni og dísilolíu lækkaði um 3,2% (vísitöluáhrif -0,19%) en flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 11% (0,19%) og verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 1,1% (0,15%).

Í Morgunkorni Íslandsbanka í gær kemur fram að Greining bankans undrast mina miklu hækkun á flugfargjöldum til útlanda sem varð milli maí og júní, en Morgunkorn hafði reiknað með talsverðri lækkun. „Hafa flugfargjöld til útlanda samkvæmt mælingum Hagstofunnar hækkað gríðarlega á skömmum tíma og frá áramótum talið nemur hækkunin 34%, sem er langmesta hækkun á þessum lið eins langt aftur og gögn Hagstofunnar ná, eða til ársins 2002,“ segir orðrétt í Morgunkorni Íslandsbanka.