Barack Obama, Bandaríkjaforseti, er með mest fylgi í þremur stærstu ríkjum Bandaríkjanna. Forsetakosningar fara fram í landinu í nóvember og stendur baráttan á milli Obama, sem er frambjóðandi Demókrataflokksins, og Mitts Romneys, sem verður frambjóðandi Repúblikanaflokksins.
Samkvæmt könnun Quinnipiac háskólans nýtur Obama stuðnings 45% kjósenda á Flórída en fylgi Romneys mælist 41%. Í Ohio er Obama með 47% en Romney 38%. Í Pennsylvaníu mælist Obama með 45% fylgi en Romney nýtur stuðnings 39% kjósenda.
Forsetakjörið fer fram 4. nóvember í haust.