Honda Accord er gríðarlega vinsæll bíll vestanhafs og ár eftir ár er hann mest seldi fólksbíllinn ásamt Toyota Camry.
Honda Accord er gríðarlega vinsæll bíll vestanhafs og ár eftir ár er hann mest seldi fólksbíllinn ásamt Toyota Camry.
Viðamikil bandarísk könnun sem gerð var meðal ríflega 3.000 bandarískra bíleigenda sýnir enn og aftur gæði Honda-bíla en Honda trónir þar efst með gæðaeinkunnina 81,3.

Viðamikil bandarísk könnun sem gerð var meðal ríflega 3.000 bandarískra bíleigenda sýnir enn og aftur gæði Honda-bíla en Honda trónir þar efst með gæðaeinkunnina 81,3. Hástökkvarar könnunarinnar voru hinsvegar Ford og Hyundai sem bættu einkunn sína verulega frá samskonar könnun fyrir 5 árum, Ford um 37% og Hyundai um 25%. Ford náði með því fjórða sæti framleiðenda með einkunnina 70,5 og varð með því rétt á eftir Subaru sem fékk 71,1. Í öðru sæti var Toyota með 80,1 og var því ekki langt á eftir Honda í gæðum að mati bíleigendanna. Í fimmta til sjöunda sæti voru síðan Nissan, Volkswagen og Mazda. Athygli vekur að bandarísku merkin Chrysler, Dodge, GMC, Buick, Jeep og Chevrolet voru öll frekar neðarlega á listanum. Þó ekki eins neðarlega og Fiat og Smart, sem ráku lestina.

Lexus efst í lúxusbílaflokki

Árangur Ford og Hyundai kemur fáum á óvart í ljósi þess að bæði fyrirtækin hafa á síðustu árum kynnt mikið af vönduðum nýjungum í bílum sínum, framþróaða tækni og vandaða smíði. Áhersla beggja fyrirtækja hefur verið á gæði umfram magn. Í lúxusbílaflokki var Lexus, lúxusarmur Toyota, hæst með 80,1 og í kjölfarið komu þýsku merkin Mercedes Benz, BMW og Porsche, en Audi náði aðeins áttunda sæti. Hin dýru merki Jaguar, Cadillac, Lincoln og Land Rover féllu öll neðar en meðaltal lúxusbílaflokksins, sem var 71,2. Alfa Romeo rak hinsvegar restina í flokknum.