Hönnun Á síðunni mæla Kim og Jo með hönnuðum, verslunum og ýmsu fleira.
Hönnun Á síðunni mæla Kim og Jo með hönnuðum, verslunum og ýmsu fleira. — AFP
Hinar smekklegu Kim og Jo hafa aldrei hitt hvor aðra en eiga það sameiginlegt að vera að leita að hinu fullkomna herbergi. Stöllurnar kynntust á netinu fyrir nokkrum árum og ákváðu að stofna vefsíðu um þetta áhugamál sitt.

Hinar smekklegu Kim og Jo hafa aldrei hitt hvor aðra en eiga það sameiginlegt að vera að leita að hinu fullkomna herbergi. Stöllurnar kynntust á netinu fyrir nokkrum árum og ákváðu að stofna vefsíðu um þetta áhugamál sitt. Báðar lýsa sér sem svokölluðum innanhússhönnunarfíklum enda með brennandi áhuga á fallegum munum, skemmtilegum litasamsetningum og sniðugum lausnum fyrir heimilið.

Á síðunni má finna allskonar myndir af fallegum heimilum og húsgögnum til að veita öðrum innblástur eins og nafn síðunnar gefur til kynna. Kim og Jo virðast vera einstaklega smekklegar og ráðagóðar þegar kemur að hönnun fyrir heimilið.

Næst þegar þarf að flikka upp á eldhúsið eða forstofuna er því tilvalið að fara inn á síðu þeirra Kim og Jo til að fá hugmyndir og innblástur.